Document Actions

Mikill ávinningur af norrænni orkustefnu

Ef norrænu ríkin samræma orku-, loftslags- og umhverfisverndarstefnu sína til framíðar gæti það verið til mikilla hagsbóta fyrir umhverfið og samfélagsskipulag. Þetta kemur fram í nýrri norrænni rannsókn sem sænska umhverfisstofnunin stjórnaði

22/06 2010
Vindmølle

Vindorkuver

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Rannsóknin var fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni og gerð í samstarfi rannsóknastofnana í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.

Ófullgerð stefnumörkun um loftslagsmál gæti valdið árekstrum milli loftslagsmála og mengunarvarna. Til dæmis fylgir aukin áhætta því að auka notkun á lífrænu eldsneyti   eins og  stefnt er að  í fjölmörgum stefnum  um loftslagsmál, vegna þess að  meiri losun af smáögnum  í andrúmsloftið er ógn við lýðheilsu.

„Samræmd stjórnun á orku-, loft- og loftslagsmálum ætti að auðvelda Norðurlöndum að ná þeim markmiðum um umhverfismál sem sett hafa verið jafnt heima fyrir og fyrir þau í heild“ segir Stefan Åström, verkefnisstjóri hjásænsku umhverfisstofnuninni.

Ef norrænu ríkin samræma orku-, loftslags- og loftmengunarstefnu sína til framíðar gæti það leitt til mikils ávinnings í umhverfismálum og þannig bætt ástandið á mörgum sviðum. Þetta myndi einnig auðvelda norrænu ríkjunum að koma sínum sjónarmiðum á framfæri í alþjóðlegum samningum, eins og samningum UNECE, CLRTAP, ESB CAFE og UNFCCC.

Sýnt er fram á það í rannsókninni að norrænu ríkin gætu haft enn frekari ávinning af samstarfi um stefnumörkun. Óvissa er alltaf mikil í stefnumörkunarvinnu, en norrænu ríkin gætu með auknu samstarfi dregið úr óvissu, s.s.  um verðmyndun  á eldsneyti og orkuþörf. Nánari upplýsingar gefur Stefan Åström í síma +0ö31 725 6205

Skýrslan Nordic low CO2 emissions scenarios - implemented in the GAINS model

 

Tengiliðir

Stefan Åström, Svenska Miljöinstitutet IVL, stefan.astrom@ivl.se Tfn: +46 (0) 31 725 62 05