Document Actions

Mikill norrænn áhugi á Rússlandi

Þann 16. maí leggja 15 fulltrúar Norðurlandaráðs land undir fót og heimsækja Leningrad- og Kalíníngradsvæðin í Rússlandi. Þar munu þeir funda með rússneskum starfssystkinum sínum og kynna sér brýnustu verkefni í þessum héruðum Rússlands.

13/05 2010
Sinikka Bohlin
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

„Ánægjulegt er hve mikinn áhuga starfssystkin mín í Norðurlandaráði hafa á því að kynna sér stöðu mála í Rússlandi og einnig að heimsóknin skuli fara fram á tímum aukinnar samvinnu milli Norðurlanda og Rússlands", segir Sinikka Bohlin fulltrúi í forsætisnefnd Norðurlandaráðs. Bohlin fer fyrir norrænu sendinefndinni í heimsókninni.

Í heimsókninni sem standa mun í fimm daga munu þingmennirnir meðal annars kynna sér uppbyggingu og innviði hafnarinnar í Primorsk, fræðast nánar um samstarfið milli Norðurlanda og rússneska bæjarins Vyborg og heimsækja Dúmuna í Kalíníngrad.

„Það verður mjög áhugavert að hlusta á kynningarnar, m.a. um mansal. Norðurlönd og Norðvestur-Rússland vinna nú þegar náið saman á sviði heilbrigðis- og félagsmála. Það er ef til vill hægt að efla samstarfið enn frekar?" segir Siv Friðleifsdóttir, formaður velferðarnefndarinnar Norðurlandaráðs í upphafi ferðar.

Þingmannasamstarf Norðurlanda og Rússlands verður rætt í hringborðsumræðum í Björgvin fimmtudaginn 27. maí.

Norræna upplýsingaskrifstofan í Pétursborg og Kalíníngrad legga einnig sitt af mörkum til heimsóknar Norðurlandaráðs.

Tengiliðir

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org