Mikill stuðningur við aðgerðir Norðurlanda gegn hagræðingu úrslita

12.04.18 | Fréttir
Matchfixning
Photographer
Click and Boo on Unsplash
Norðurlöndin verða fyrsta svæði heims þar sem samvinna verður milli landa gegn hagræðingu úrslita. Þetta var boðskapur Norrænu þekkingar- og menningarnefndarinnar á þemaþingi Norðurlandaráðs á Íslandi.

Alþjóðlegur vandi

„Hagræðing úrslita er mikill vandi um allan heim og er óheilbrigð menning í heimi íþrótta. Þess vegna er mikilvægt að Norðurlandaráð leggi áherslu á málefnið þannig að svæðið verði leiðandi og torveldi í sameinigu þeim sem hagræða úrslitum að flytja starfsemi sína milli Norðurlanda,“ segir Annette Lind sem er í flokkahópi jafnaðarmanna.

Hagræðing úrslita er mikill vandi um allan heim og er óheilbrigð menning í heimi íþrótta. Þess vegna er mikilvægt að Norðurlandaráð leggi áherslu á málefnið þannig að svæðið verði leiðandi og torveldi í sameingu þeim sem hagræða úrslitum að flytja starfsemi sína milli Norðurlanda.

 

Hagræðing úrslita er alþjóðlegt vandamál og nefndarmenn vilja senda skýr skilaboð um þörfina fyrir norrænt samstarf. Á fundinum á Akureyri 10. apríl var samþykkt tillaga til Norrænu ráðherranefndarinnar um að hún styðji í öllum meginatriðum áform ólympíunefnda og íþróttasambanda landanna um að Norðurlönd verði fyrsta svæði heims sem kemur á fót kerfi um gagnkvæma viðurkenningu á refsiaðgerðum vegna hagræðinga úrslita í íþróttaleikjum alls staðar á Norðurlöndum.

Svíþjóð vísar veginn með setningu laga

Um leið og stefnumótunarferlið heldur áfram skiptir máli að hvert og eitt hinna norrænu ríkja líti til nýrra lausna. Í Svíþjóð hefur starfið verið eflt með nýju furmvarpi til laga sem meðal annars kveður á um harðari refsingar gagnvart þeim sem uppvísir eru að hagræðingu úrslita og að hafa áhrif á leikmenn og sömuleiðis gagnvart þeim sem nýta sér tækifærin sem felast í íþróttastarfi þar sem úrslit hafa verið hagrædd. Peter Johnson, fulltrúi í nefndinni segir:

„Um leið og lögin er skerpt er reglum breytt á sænska leikjamarkaðinum sem þýðir meðal annars að alþjóðleg spilafyrirtæki verða að skrifa undir leyfi sem meðal annars leiðir til þess að eftirlit verður meira með hagræðingu úrslita.

Ég vona að Svíþjóð verði leiðandi nú þegar lögin um hagræðingu úrslita verða skerpt og að Norðurlöndin geti fylgt í kjölfarið.

Vonir standa til að aðgerðir þjóðanna og reynsla eins og þessi muni dreifast um Norðurlöndin öll og á þann hátt flyta þróuninni. Annette Lind segir:

„Ég vona að Svíþjóð verði leiðandi nú þegar lögin um hagræðingu úrslita verða skerpt og að Norðurlöndin geti fylgt í kjölfarið.“

Spilafyrirtæki gegna mikilvægu hlutverki

Norrænu ólympíunefndirnar og íþróttasamböndin vinna náið saman um regluverk sem á að taka til allra Norðurlandanna en nefndin leggur áherslu á að spilafyrirtækin í löndunum gegni einnig mikilvægu hlutverki gegnum sín kerfi sem geta tryggt og þróað eftirlit með hagræddum úrslitum.

Tillagan sem samþykkt var byggir á gagnkvæmri viðurkenningu á refsiaðgerðum vegna hagræðingar úrslita og þingmannatillögu frá flokkahópi jafnaðarmanna. Tillagan er nú send áfram til meðferðar á þingi Norðurlandaráðs.