Milljónafjárveiting eflir blaðamennsku í Rússlandi og á Norðurlöndum
Rússneskir blaðamenn fræðast um norrænt lýðræði og og óháða blaðamennsku og norrænir blaðamenn fá betri vitnskju um Rússland.
Norræna blaðamannamiðstöðin (NJC), sem rekin er af UPDATE við danska fjölmiðla- og blaðamannaháskólann, hefur fengið fjárveitingu að upphæð 4 milljónir danskra króna frá Norrænu ráðherranefndinni. Henni verður varið til að efla samstarf um blaðamennsku/fjölmiðlun milli Norðurlanda og Norðvestur-Rússlands á árunum 2012 og 2013.
Fjárveitingin mun stuðla að því að fjölmörgum verkefnum verður hrint úr vör fyrir þá sem stunda nám í blaðamennsku og ekki síst blaðamenn í starfi. Samstarfsverkefni munu ná til símenntunar, námsferða, kennslu og samstarfs um verkefni á sviði blaðamennsku og menningar eins og t.d. ljósmyndabækur.
- Eitt af mikilvægustu markmiðum þessa samstarfs er að stuðla að lýðræðislegri samfélagsþróun. Og hluti af framlagi okkar frá Norðurlöndum er að sýna skilning okkar á því hvernig nútímalegt lýðræði með frjálsum fjölmiðlum er o.sv.frv Á móti geta rússneskir samstarfsaðilar okkar - fyrir utan að vera hluti af tengslaneti okkar - veitt norrænum blaðamönnum innsýn í rússneskar aðstæður, segir Steen K. Rasmussen, þróunarstjóri í UPDATE og framkvæmdastjóri NJC.
Samstarf er mikilvægt
Norræna blaðamannamiðstöðin hefur oft fengið fjárveitingu frá Norrænu ráðherranefndinni til svokallaðra mannaskiptaáætlana , en auk norrænu ríkjanna eru rússnesku héruðin Kaliningrad, Múrmansk og Pétursborg á samstarfssvæðinu. Fjárveiting til þessa samstarfs hefur þó aldrei verið hærri
- Þetta er frábært, því með svona mikið fjármagn getum við kafað dýpra og framkvæmt verkefni af miklum gæðum. Það er afar mikilvægt að við á Norðurlöndum höfum svæðisbundið tengslanet með stóra nágranna okkar í austri. Ekki síst fyrir Noreg og Finnland sem eiga jú landamæri að Rússlandi, segir Steen K. Rasmussen.
Tengiliðir
Steen K. Rasmussen, framkvæmdastjóri Norrænu blaðamannamiðstöðvarinnar, farsími: +45 2172 5236, netfang: sr@dmjx.dk
