Document Actions

Námstefna um norræna velferðarlíkanið

Norræna ráðherranefndin stendur fyrir námstefnunni Norðurlönd sem samkeppnishæft og einstakt velferðarsvæði - góður staður til að fjárfesta, starfa og búa. Námstefnan er liður í hnattvæðingarverkefninu.

Aug 24, 2010
Jordglob

Hvernig geta Norðurlöndin byggt upp norræna velferðarlíkanið þannig að það standist kröfur um samkeppnisfærni í hnattvæddu efnahagslífi ? Á miðvikudaginn verður norræna hnattvæðingarverkefninu ýtt úr vör.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Norrænu samstarfsráðherrarnir (MR-SAM) samþykktu þann 15. október 2009 að setja á laggirnar ýmis hnattvæðingarverkefni á árinu 2010, meðal annars á sviði heilsu og velferðar. Hnattvæðingarverkefnið um heilsu og velferð er áætlun, sem á að vera kjölfestan í samstarfi Norðurlanda á sviði heilsu og velferðar. Áætlunin er til þriggja ára og skiptist í sjö sjálfstæðar undiráætlanir. Sex ráðherranefndir - MR-S, MR-A, MR-FJLS, MR-JÄM, MR-NER og MR-U starfa í samræmi við þessa áætlun.

Markmiðið með námstefnunni er að beina sjónum að meginþemum hnattvæðingarverkefnisins - heilsu og velferð, og fjalla um þau út frá meginmarkmiðum áætlunarinnar; hvernig þróa megi norræna velferðarlíkanið þannig að það standist kröfur um samkeppnisfærni í hnattvæddu efnahagslífi. Miðað er að því að viðfangsefni á sviði velferðar verði að norrænum styrkleika.

Námstefnan á að vera vettvangur þverfaglegra umræðna og upplýsingamiðlunar milli gesta og ráðherranefndanna og stuðla auk þess að samræðu milli þátttakenda í einstökum verkefnum,  áhugasamra, framkvæmdaaðila og Norrænu ráðherranefndarinnar, með það að markmiði að bæta árangur og samræmi innan áætlunarinnar. Námstefnan á einnig að verða vettvangur fyrir fjölmiðla til að tryggja sýnileika áætlunarinnar, jafnt í þjóðlöndum og á alþjóðavettvangi.

Námstefnan verður haldin 25. ágúst kl. 09.00 - 17.00. Staður: DDC - Dansk Design Center, HC Andersens Boulevard 27, Kaupmannahöfn.

Hafið samband við
Maria-Pia de Palo, ráðgjafa hjá Norrænu ráðherranefndinni
Sími: +45 33 96 02 77
Netfang: mpp@norden.org