Nánara fiskveiðisamstarf á Vesturnorðurlöndum
Vesturnorðurlönd (Færeyjar, Grænland og Ísland) eiga í sameiningu að reyna að hafa áhrif á þær ákvarðanir sem teknar eru um fiskveiðar í Evrópusambandinu. Með því að standa saman og tala einni röddu auka löndin möguleika sína á að hafa áhrif á ESB. Annars geta þau átt á hættu að áhrif þeirra á sjávarútvegsmál minnki í framtíðinni. Þetta var niðurstaða ársfundar Vestnorræna ráðsins árið 2004.
Ekkert vestnorrænu landanna er aðili að ESB og í dag er engin sameiginleg stefna gagnvart Evrópusambandinu í sjávarútvegsmálum. Ákvarðanir ESB um sjávarútvegsmál hafa engu að síður víðfeðmar afleiðingar fyrir Vesturnorðurlönd.
Þörfin fyrir sameiginlega stefnu í sjávarútvegsmálum gagnvart Evrópusambandinu er ljós og þess vegna munu rúmlega 50 aðilar frá Vesturnorðurlöndum og Noregi, þingmenn, ráðherrar og sérfræðingar auk fulltrúa ESB og hagsmunasamtaka sem tengjast fiskveiðum, koma saman á rástefnu sem Vestnorræna ráðið heldur til að ræða málefnið. Ráðstefnan verður haldin á Hotel Føroyar í Þórshöfn í Færeyjum dagana 15. og 16. júní næstkomandi.
Markmið ráðstefnunnar er að finna þau atriði sem löndin geta orðið sammála um og á þann hátt byggja undirstöðu sem getur nýst löndunum í samskiptum þeirra við umheiminn.
Meðal frummælenda verða sjávarútvegsráðherrar Grænlands, Íslands og Færeyja, Rögnvaldur Hannesson fiskveiðihagfræðingur og prófessor við Viðskiptaháskólann í Noregi, Harry Koster, deildarstjóri tvíhliða samninga í sjávarútvegsráðuneyti Evrópusambandsins, Kjartan Hoydal frá Norður-Atlantshafs fiskveiðinefndinni, Ásmundur Guðjónsson fiskveiðiráðgjafi hjá Norrænu ráðherranefndinni og Asmund Kristoffersen þingmaður í Norðurlandaráði og norska stórþinginu.
