Newsweek: Finnland er besta land í heimi
Norðurlöndin eru efst á lista tímaritsins Newsweek yfir þau lönd þar sem best er að búa. Finnland trónir efst á listanum, en Svíþjóð og Noregur eru í þriðja og sjötta sæti. Danmörk er í tíunda sæti, en Ísland er ekki með í samanburði á þeim eitt hundrað löndum sem eru á listanum.
Þeir þættir sem lagt er mat á eruheilsa, menntun, lífsgæði, efnahagsþróun og pólitískur stöðugleiki. Þetta er fyrsta könnun sinnar tegundar sem Newsweek gerir.
Burkina Faso, Nígería og Kamerún eru þau lönd sem lenda neðst á listanum.
Listinn í heild.
