Niels Sindal nýr norrænn formaður
Jafnaðarmaðurinn Niels Sindal tekur við af Ole Stavad sem formaður sendinefndar Danmerkur í Norðurlandaráði. Ole Stavad gaf ekki kost á sér í nýafstöðnum þingkosningum.Niels Sindal kemur frá eyjunni Ærø og var fulltrúi á Evrópuþinginu á árunum 1994-1999.
Henrik Dam Kristensen fyrrverandi ráðherra sem einnig er nýr fulltrúi jafnaðarmanna í Norðurlandaráði, var einnig fulltrúi á Evrópuþinginu, á árunum 2004-2006. Hinir tveir jafnaðarmennirnir í sendinefndinni, þeir Mogens Jensen og Ole Vagn Christensen hafa aftur á móti reynslu af starfi í Norðurlandaráði. Kristen Touborg (SF), Line Barfod (Einingarlistanum) og Bente Dahl (Radikale Venstre) hafa einnig tekið þátt í starfi Norðurlandaráðs áður.
Miðjuflokkurinn Ny Alliance á nú í fyrsta sinn fulltrúa á þingi og í Norðurlandaráði. Fulltrúi flokksins er Jørgen Poulsen sem áður var framkvæmdastjóri danska Rauða krossins. Fulltrúar stjórnarflokksins Vinstri, verða Erling Bonnesen sem verður varaformaður sendinefndarinnar, Per Bisgaard, Louise Schack Elholm ásamt Karsten Lauritzen. Hann hefur áður setið á Norðurlandaráðsþingi æskunnar. Fulltrúar íhaldsmanna sem einnig sitja í ríkisstjórn eru Vivi Kier og Knud Kristensen. En fulltrúar Danska þjóðarflokksins verða Anita Knakkergaard og Henrik Brodersen.
Varamenn verða: Flemming Damgaard Larsen (V), Eyvind Vesselbo (V), Hans Christian Schmidt (V) fyrrverandi ráðherra, Edmund Joensen (SP), Tina Petersen (DF), Hans Kristian Skibby (DF), Mike Legarth (KF), Per Ørum Jørensen (KF), Henrik Høegh (V), Karen J. Klint (S), Thomas Jensen (S), Mette Gjerskov (S), Carsten Hansen (S), Karina Lorentzen (SF), Høgni Hoydal (TF) og Juliane Henningsen (IA).
Fulltrúar Færeyja verða Jógvan við Keldu (Ff) og Kári P. Højgaard (Sj) og varamenn þeirra Óli Breckmann (Ff) og Lisbeth L. Petersen (Sb). Fulltrúar Grænlands verða Otto Jeremiassen (Si) og Augusta Salling (At) og varamenn þeirra Per Berthelsen (D) og Marie Fleischer (D).
