Boð á fréttamannafund. Verið velkomin í sendiráð Svíþjóðar í Washington DC fimmtudaginn 7. mars, þar sem haldin verður námstefna um áhrif netsins á ungt fólk. Námstefnan er hugsuð sem skoðanaskipti með það fyrir augum að hvetja til umræðu milli þeirra sem málið varðar á Norðurlöndum og í Bandaríkjunum.
Norræna ráðherranefndin, í gegnum NORDBUK og embættismannanefnd um jafnréttismál í samstarfi við sendiráð Svía og Family Online Safety Intitute stendur fyrir námstefnu um áhrif netsins á ungt fólk. Námstefnan er liður í menningarhátíðinni Nordoc Cool sem haldin er í Washington DC. Fjöldi norrænna aðila vinnur að því að koma í veg fyrir áreiti og misnotkun ungs fólks á netinu. Efni og rannsóknir sem gerðar hafa verið sýna að margt er líkt og ólíkt í hegðunarmynstri drengja og stúlkna á netinu og það speglar mynstur annars staðar í samfélaginu.
Dagsetning 7. mars
Tími: 09.30.00-12.00
Staður: Sendiráð Svía í Washington DC
Markhópur: Námstefnan er ætluð stjórnmálamönnum, vísindamönnum, embættismönnum og þá sem vinna við málefnið
Verð: Námstefnan er ókeypis.
Þátttakendur:
Skráning og dagskrá er á vefsíðu sendiráðsinshttp://bit.ly/WsYkeq
Jesper F. Schou-Knudsen
Sími
+45 33 96 03 55
Tölvupóstur
jsk@norden.org
Heidi Orava
Sími
+45 21 71 71 48
Tölvupóstur
heor@norden.org
Gabriella Augustson, Public Diplomacy & Press Counselor, +1 (202) 467-2655, Farsími: +1 (202) 413-2544 Fjölmiðlafulltrúi Ungdomsstyrelsen: Malin Engstedt, +46 (0)70- 663 39 18, malin.engstedt@ungdomsstyrelsen.se