Finnskur tangó, sænsk töfrabrögð og norrænar stuttmyndir verða á boðstólum í þrítugsafmælisveislu Norðurlandahússins í Færeyjum.
Norðurlandahúsið í Færeyjum Ljósmynd: Ólavur Frederiksen
Norðurlandahúsið í Færeyjum fagnar 30 ára afmæli 8. maí. Húsið opnaði 1983 og afmælinu verður fagnað með fjölda viðburða í opnu húsi.
Í afmælisdagskrá er sérstök áhersla á norræna menningu og það sem afmælisgestum verður boðið upp á er t.d. finnskur tangó, sænsk töfrabrögð, norrænar stuttmyndir, norrænn matur og tónleikar með 10 norrænum söngvurum og skáldum.
Aðrir afmælisviðburðir tengjast listaumhverfinu á staðnum, með alþjóðlegu ívafi. Þar má nefna prjónað færeyskt ævintýri sem færeyski hönnuðurinn Jóhanna av Steinum hannaði og sýningu á 10 glerfuglum sem var að koma heim aftur af sýningunni Nordic Cool Festival í Washington og er gerð af færeyska listamanningm Tróndur Patursson.
Hefðbundið lýkur veislunni eins og öðrum veislum í Færeyjum með færeyskum dansi, þar sem allir gestir taka þátt og syngja um hetjur fortíðar í norræna menningarhúsinu, sem er opið fyrir nýjum straumum og nýjum menningarhetjum í norrænu samstarfi.
Í afmælisvikunni verða einnig haldnir stórtónleikar laugardaginn 11. maí fyrir yngri kynslóðina, þar sem fram koma ungir og upprennandi listamenn frá Íslandi og Færeyjum.
Norðurlandahúsið hefur þessi 30 ár gegnt mikilvægu hlutverki fyrir list og menningu í Færeyjum. Góður mælikvarði á það er sá mikli áhugi sem almenningur í Færeyjum og færeyskir, norrænir og alþjóðlegir listamenn sýna húsinu dags daglega, og sem vilja leggja sitt af mörkum til framtíðar hússins.
Urd Johannesen
Sími
+298 223010
Tölvupóstur
urd@nlh.fo
Jesper F. Schou-Knudsen
Sími
+45 33 96 03 55
Tölvupóstur
jsk@norden.org