Document Actions

Norðurlandaráð beinir sjónum að umhverfismálum á Norðurskauti

Nú er tími mikillar skipaumferðar við Norðurskautið, en áhersla á öryggismál á hafinu hefur ekki aukist í takt við aukna skipaumferð í norðurhöfum. Vandinn verður enn meiri, þegar norðvesturleiðin opnast. Aukinn áhugi á olíuvinnslu veldur einnig mikilli umhverfishættu fyrir viðkvæma náttúru Norðurskautsins. Umhverfis- og auðlindanefnd Norðurlandaráðs heimsótti Svalbarða á dögunum og skoðaði svæðið og þau verkefni sem þar liggja fyrir.

Jul 04, 2010
Ann-Kristine Johansson

„Slysið á Mexikóflóa sýnir okkur, hversu viðkvæmt sjávarumhverfið er. Við verðum að tryggja að svona slys verði aldrei á okkar hafsvæði", segir Ann-Kristine Johansson

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

„Slysið á Mexikóflóa sýnir okkur, hversu viðkvæmt sjávarumhverfið er. Við verðum að tryggja að svona slys verði aldrei á okkar hafsvæði. Þess vegna beinum við sjónum að Vestur-Norðurlöndum með það að markmiði að styrkja umhverfis- og haföryggi á öllu svæðinu", segir Ann-Kristine Johansson, formaður Náttúru- og auðlindanefndar Norðurlandaráðs og þingmaður jafnaðarmanna á sænska þinginu.
 
Nefndin heimsótti nokkrar stofnanir og kynnti sér ný rannsóknaverkefni, sem felast í rannsóknum á því hvernig loftslagsbreytingar hafa áhrif á umhverfið. Norræna öndvegisáætlunin hefur veitt 100 milljónum norskra króna í styrki til þriggja norrænna öndvegissetra sem rannsaka loftslagsbreytingar. UNIS, Háskólinn á Svalbarða, tekur þátt í tveimur af þessum rannsóknaverkefnum.

Tengt efni