Document Actions

Norðurlandaráð:   Brottkast á fiski er ótækt

Norðurlandaráð hvetur framkvæmdastjórn ESB til þess að banna brottkast á fiski og tryggja að sjávarútvegsstefna framtíðarinnar verði umhverfis-, efnahags- og félagslega sjálfbær.

17/12 2009
Fisk

Norðurlandaráð hvetur framkvæmdastjórn ESB til þess að banna brottkast á fiski og tryggja að sjávarútvegsstefna framtíðarinnar verði umhverfis-, efnahags- og félagslega sjálfbær.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

 

Á hverju ári kasta evrópskir sjómenn gífurlegu magni af fiski tilbaka í sjóinn, og oft lifir þessi óæskilegi fiskur ekki af hina illu meðferð. Brottkastið er ótækt ef litið er til siðfræði og áhrifa á umhverfi og stofnstærð. Því hvetur Norðurlandaráð í yfirlýsingu sinni um endurskoðun á sjávarútvegsstefnu ESB, framkvæmdastjórn ESB til þess að byggja fiskveiðistjórnunarkerfi sitt til framtíðar á öðrum grunngildum en núgildandi kerfi.

Norðurlandaráð vill að aðgerðum til að vernda tegundir og vistkerfi verði flýtt, og að aflamark verði ákveðið þannig að að ofveiddir evrópskir fiskistofnar geti vaxið á ný.

Norðurlönd eiga mörg góð ráð um það hvernig leysa má þann vanda sem fiskveiðistefna ESB er ætlað að leysa. Málið snýst ekki bara um að stöðva brottkast, heldu að ákveða fjölda veiðidaga á hvern bát, kvóta á afla, lágmarksstærð afla, ásamt tímabundnum lokunum á mikilvægum hrygningarsvæðum.

Umhverfis- og auðlindanefnd Norðurlandaraáðs og Norræna ráðherranefndin heldur þann 27. janúar 2010 námstefnu í tilefni af endurskoðun á sameiginlegri sjávarútvegsstefnu ESB.

 

Tengt efni
  • "ESB ætti að banna brottkast á fiski" (News Item)

    Þúsundum tonna af afla er árlega kastað aftur í hafið vegna þeirra reglna sem gilda um evrópsk fiskveiðiskip. ESB verður að finna lausn á þeim vanda sem brottkastið veldur. Þetta skrifar Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar í grein sem birtist í norrænum og alþjóðlegum fjölmiðlum.

  • Sjávarútvegur (Samstarfssvæði)