Norðurlandaráð, ESB og Rússar funda um uppbyggingu á norðurslóð
Fulltrúar norrænu ríkjanna og Eystrasaltsríkjanna hittast á fundi með fulltrúum Rússlands, ESB, og fulltrúum stjórnvalda á Norðurskauts- og Barentssvæðinu þann 22. Febrúar. Markmiðið er að ræða brýn málefni, s.s. mengun í Eystrasalti, umbætur á siglingaleiðum í norðurhöfum sem tengja Evrópu og Asíu, orkustefnu og önnur sameiginleg hagsmunamál.
Stjórnmálamenn frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum auk fulltrúa Norðurskauts- og Barentssvæðanna hitta fulltrúa frá rússnesku Dúmunni og Evrópuþinginu á annari þingmannaráðstefnu norðlægu víddarinnar dagana 22.-23. febrúar.
Fundurinn verður haldinn í Tromsö í Noregi og norska þingið er gestgjafi.
Meðal gesta eru þingmenn Sama og annarra frumbyggja á Norðurskautssvæðunum.
Norðlæga víddin byggir á fjórum meginstoðum: umhverfisvernd, heilbrigðis- og félagsmálum, samgöngum og menningu. Rætt verður um málefni á öllum þessum fjórum sviðum, og verða niðurstöður að stefnumótandi tillögum til ríkisstjórna allra landa sem hafa hagsmuna að gæta.
Fyrsta þingmannaráðstefna norðlægu víddarinnar var haldin af Evrópuþinginu árið 2009. Stofnað var til umræðuvettvangsins til þess að bæta samvinnu og framþróun í Norður-Evrópu og á Norðurskautssvæðinu.
Nánari upplýsingar
Um skráningu og fréttaþjónustu sér:
Thomas Fraser thomas.fraser@stortinget.no +47 40 45 54 50
