Document Actions

Norðurlandaráð:   - Fráleitt að stöðva Baltic Pride

Helgi Hjörvar, forseti Norðurlandaráðs, gagnrýnir harðlega úrskurð dómstóls í Vilníus á miðvikudag, þess efnis að banna göngu samkynhneigðra, Baltic Pride 2010, sem átti samkvæmt áætlun að fara fram í Vilníus þann 8. maí.

05/05 2010
Helgi Hjörvar

- Að banna gleðigönguna er brot á tjáningar- og félagafrelsi og því verðum við að mótmæla kröftuglega, segir Helgi.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

- Það er mikilvægt fyrir Norðurlandaráð að framtíðarsamstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna þriggja byggi á grunngildum eins og lýðræði, tjáningarfrelsi og mannréttindum, segir Helgi Hjörvar forseti Norðurlandaráðs.

Baltic Pride er sameiginlegur viðburður samkynhneigðra, transfólks og tvíkynhneigðra í Litháen, Lettlandi og Eistlandi.

- Að banna gleðigönguna er brot á tjáningar- og félagafrelsi og því verðum við að mótmæla kröftuglega, segir Helgi.

Norðurlandaráð hefur átt samstarf við Eystrasaltsríkin þrjú frá árinu 1990, samstarf sem hefur leitt til þess að settar hafa verið á laggir norrænar upplýsingaskrifstofur í höfuðborgum ríkjanna þriggja.

Dómstóll í Vilníus, höfuðborg Litháen, ákvað miðvikudaginn 5. maí að að banna Baltic Pride 2010 þann 8. maí, af þeirri ástæðu að gangan væri ógn við almannöryggi. Dómsniðurstöðunni hefur verið áfrýjað.

Tengiliðir

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org