Document Actions

Norðurlandaráð í eftirlitsferð í Sellafield kjarnorkuverinu

Norðurlandaráð tók nýlega þátt í umræðum í Sellafield kjarnorkuverinu. Fulltrúar ráðsins þau Kim Nielsen, Álfheiður Ingadóttir og Jan Lindholm hafa í tilefni af umræðunum sent yfirlýsingu fyrir hönd umhverfis- og auðlindanefndar Norðurlandaráðs.

05/06 2012

„Ég vil gjarnan hrósa fyrir þær mörgu breytingar sem gerðar hafa verið á öryggismálum í Sellafield á undanförnum árum. En engu að síður verð ég að segja að endurvinnsla kjarnorkuúrgangs er enn ógn”, segir Álfheiður Ingadóttir fulltrúi Vinstri-grænna á Íslandi.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Norðurlandaráð hefur lengi haft kjarnorkuöryggi á dagskrá sinni. Sérstök áhersla hefur verið á endurvinnslustöðina í Sellafield á Englandi og losun geislavirks úrgangs á Barentssvæðinu.

Í framhaldi af umræðufundi sem umhverfisnefnd Norðurlandaráðs stóð fyrir í Reykjavík í byrjun maí, tóku þrír fulltrúar í nefndinni þátt í ferð til Sellafield þann 1. júní. Niðurstaða ferðarinnar var jákvæð vegna þeirra breytinga sem átt hafa sér stað í öryggismálum í stöðinni, en vandamálið sem geymsla kjarnorkuúrgangs er, veldur enn miklum áhyggjum.

„Ég gjarnan hrósa fyrir þær mörgu breytingar sem gerðar hafa verið á öryggismálum í Sellafield á undanförnum árum. En engu að síður verð ég að segja að endurvinnsla kjarnorkuúrgangs er enn ógn og því verður að gera allt sem unnt er til að finna endanlegar, öruggar geymslulausnir”, segir Álfheiður Ingadóttir fulltrúi Vinstri-grænna á Íslandi.

Jan Lindholm starfsfélagi hennar úr Umhverfisflokknum í Svíþjóð er henni sammála:

„Endurvinnsla kjarnorkuúrgangs er og verður áfram stórt verkefni og því fylgir mikil áhætta fyrir fyrir umhverfi og fólk. Engar lagtímalausnir fyrir örugga endurvinnslu eru í sjónmáli.  Bæði Svíar og Finnar, sem nota kjarnorku, hafa viðurkennt þetta.  Ég hvet Breta til að gera slíkt hið sama”, segir hann eftir ferðina til Sellafield.

Kim Nielsen frá Siumut á Grænlandi bætir við:

„Rúmlega ár er liðið frá kjarnorkuslysinu í Fukushima í Japan, þar sem heimur allur var minntur á að fullkomin stjórn á kjarnorku er ekki möguleg. Mannleg mistök geta einnig átt sér stað í Sellafield. Þar geta orðið náttúruhamfarir sem verða til þess að geislun á sér stað, sem getur haft áhrif á lífsskilyrði fólks sem býr langt frá Sellafield kjarnorkuendurvinnslustöðinni, í Noregi, á Grænlandi og Íslandi”.

Stjórnmálamennirnir þrír úr umhverfisnefnd Norðurlandaráðs hafa í tengslum við umræðurnar sent frá sér yfirlýsingu, sem á að verða grundvöllur áframhaldandi vinnu með þetta málefni á vegum Norðurlandaráðs.

Umræðurnar í Sellafield voru á vegum Sellafield Ltd, Bellona og Guardians of our Common Sea.

Tengiliðir

Tryggvi Felixson
Sími +45 29 69 29 37
Tölvupóstur tfe@norden.org