Document Actions

Norðurlandaráð í kjarnorkueftirliti

Umhverfisnefnd Norðurlandaráðs sendir eftirlitsmenn til að skoða kjarnorkuver í Rrússlandi og á Bretlandseyjum Sænska þingkonan Ann-Kristine Johansson og formaður nefndarinnar segir mikilvægt að fylgja eftir kröfum um öryggi í kjarnorkuverum í grannríkjunum.

01/04 2011
Ann-Kristine Johansson

– Mikilvægt er að við norrænir þingmenn leggjum okkar af mörkum til að tryggja eftirfylgni með kjarnorkuöryggi, bæði á Norðurlöndum og í grannríkjum okkar segir Ann-Kristine Johansson, formaður umhverfisnefndar.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Norðurlandaráð tekur þátt í fjölmörgum alþjóðlegum verkefnum, og umhverfis- og auðlindanefndin sendir nú fulltrúa sína til funda í grannríkjunum til að ræða um kjarnorkuöryggi og kjarnorku.

Til að byrja með verður fundað í Lofoten í apríl um Sellafield-kjarnorkuendurvinnslustöðina á Bretlandi og í Múrmansk um kjarnorku í Norðvestur-Rússlandi.

– Mikilvægt er að við norrænir þingmenn leggjum okkar af mörkum til að tryggja eftirfylgni með kjarnorkuöryggi, bæði á Norðurlöndum og í grannríkjum okkar segir Ann-Kristine Johansson, formaður umhverfisnefndar.

Í ljósi þess að Rússar hafa uppi áætlanir um reisa kjarnorkuver á hafi út er þetta afar mikilvægt, ekki síst í ljósi reynslunnar í Japan eftir flóðbylgjuna segir Johansson.

Nefndin hittist á aprílfundi Norðurlandaráðs þar sem meðal annars var samþykkt að leggja fram tillögur í tengslum við endurskoðun á landbúnaðarstefnu ESB.

Þar verður áherslan lögð á afhendingaröryggi matvæla og afnám útflutningsstyrkja. Nefndin mun einnig leggja til umfangsmiklar breytingar á styrkjakerfi ESB.

Nefndarmenn ræddu einnig þátttöku Norðurlanda á alþjóðlegu ráðstefnu um sjálfbærni sem haldin verður í Ríó á næsta ári, öryggismál á Norður-Atlantshafi og möguleikann á sameiginlegri þátttöku í loftslagsviðræðum Sþ í desember.

Tengiliðir

Michael Funch
Sími +45 33960332
Tölvupóstur mifu@norden.org

Tryggvi Felixson
Sími +45 3396 0453
Tölvupóstur tfe@norden.org

Tengt efni