Document Actions

Norðurlandaráð:   Menntakerfið verður að taka tillit til allra

- Við verðum að losna úr viðjum vanans, ef við ætlum að tryggja öllum nemendum pláss í menntakerfinu. Þetta er álit menningar- og menntanefndar Norðurlandaráðs.

26/01 2010
Mogens Jensen

- Menntakerfi framtíðarinnar á að starfa á breiðari grundvelli og leggja rækt við faglegt starf, sköpun og nýsköpun, segir Mogens Jensen formaður menningar- og menntanefndar Norðurlandaráðs.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Menntun og nýsköpun verða efst á forgangslista nefndarinnar þegar þingmennirnir 15 sem skipa nefndina heimsækja framsækna kennaraskólann Metropol á Friðriksbergi í Kaupmannahöfn á morgun.

Sérstaða hvers og eins er styrkur sem ber að virða og þroska ef við ætlum að tryggja að allir fái menntun við hæfi og verði virkir í þjóðfélaginu. Að minnsta kosti ef Norðurlandaráð fær einhverju ráðið, en það er ekki sammála einhliða áherslu einstakra landa á faglegt nám.

Við verðum að þora að hugsa hlutina upp á nýtt og gera tilraunir í skólastarfi svo það verði skipulagt með það að markmiði að draga fram hæfileika, sérstöðu og hæfileika sérhvers nemanda, segir í yfirlýsingu frá ráðinu.

- Það er afar mikilvægt að við mentum ekki eingöngu nemendur sem standa sig vel í hefðbundnum grunnfögum. Þeir verða einnig að vera færir um að hugsa á nýstárlegan hátt og vinna saman að skapandi lausnum. Þjóðfélagið þarfnast hvorttveggja ef við ætlum að stuðla að áframhaldandi framþróun og nýjum sóknarfærum fyrir Norðurlöndin, segir Mogen Jensen, formaður menningar og menntanefndar Norðurlandaráðs.

Við verðum að breyta áherslum þannig að þær séu ekki einungis á bóklega greind eins og raunin er í dag.

- Til er margs konar greind, og ein tegund er ekki betri en önnur. Sumir nemendur eru færir í einu, aðrir í einhverju öðru. Þessu hefur sér í lagi danska ríkisstjórnin gleymt. Við eigum ekki að skipta þeim nemendum upp í hópa hæfra og óhæfra, heldur virða að enginn er eins og allir þurfa stuðning.

- Menntakerfi framtíðar á að starfa á breiðari grunni og leggja rækt við faglegt starf, sköpun og nýsköpun, segir Mogens Jensen formaður nefndarinnar.

Tengiliðir

Jesper F. Schou-Knudsen
Sími +45 33 96 03 55
Tölvupóstur jsk@norden.org