Fulltrúar í Norðurlandaráði hitta fulltrúa neytendanefndar Evrópuþingsins í Strassborg, þriðjudaginn 15. júní, til að ræða neytendamál og tillögu ESB að tilskipun um réttindi neytenda.
- ESB leggur til í tillögu sinni að neytendamál í ESB verði samræmd að fullu, en það mun veikja neytendavernd á nokkrum sviðum, segir Henrik Dam Kristensen.
- ESB leggur til í tillögu sinni að neytendamál í ESB verði samræmd að fullu, en það mun veikja neytendavernd á nokkrum sviðum. Norðurlandaráð er á móti slíkri samræmingu og það er eitt af þeim málum sem við viljum ræða við starfssystkin okkar í Evrópuþinginu, segir Henrik Dam Kristensen, fulltrúi í borgara- og neytendanefnd Norðurlandaráðs og þingmaður á danska þinginu.
Norðurlandaráð óttast að tillagan, eins og hún lítur út í dag, muni veikja réttindi norrænna neytenda.
- Réttindi neytenda á Norðurlöndum eru mikil. Þar er svipuð neyslumenning, mjög meðvitaðir neytendur og hefð fyrir öflugum neytendasamtökum. Við getum gengið á undan með góðu fordæmi innan ESB. Þess vegna er mikilvægt fyrir okkur að ræða tillöguna áður en tilskipunin verður samþykkt, segir Helgi Hjörvar, forseti Norðurlandaráðs og alþingismaður.
Fjallað verðum um tillöguna í Evrópuþinginu í haust.
Borgara- og neytendanefnd Norðurlandaráðs hefur einnig mikinn áhuga á að endurvekja norrænt samstarf um neytendamál. Hagsmunir norrænna neytenda eru mjög oft þeir sömu og því gæti samstarf verið til mikilla hagsbóta að mati nefndarinnar.
Silje Bergum Kinsten
Tölvupóstur
silje.kinsten@stortinget.no