Document Actions

Norðurlandaráð vill fund með samþættingaráðherra Danmerkur

Þingmenn Norðurlandaráðs kalla Birthe Rønn Hornbech samstarfsráðherra Danmerkur, á teppið. Borgara- og neytendanefndin hefur boðið ráðherranum á næsta fund sinn til að ræða túlkun hans á samstarfssáttmála Norðurlanda.

29/06 2010
Ville Niinistö

„Okkur finnst svar danska ráðherrans óljót og bjóðum henni því til fundar með okkur og óskum eftir að hún skýri nánar hvernig reglunum er framfylgt og hvernig Danir túlka norræna sáttmálann", segir Ville Niinistö.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Norrænu þingmennirnir hafa óskað eftir fundi með Birthe Rønn Hornbech í kjölfar þess að norrænum ríkisborgurum hefur verið vísað frá Danmörku fyrir þær sakir að þiggja félagslega aðstoð.

„Ráðherrann segir í bréfi til nefndarinnar að ekkert hafi breyst hvað varðar framkvæmd reglna í Danmörku. Okkur finnst svar ráðherrans fremur óskýrt og bjóðum honum því til fundar með okkur og óskum eftir að hún skýri nánar hvernig reglunum er framfylgt og hvernig Danir túlka norræna sáttmálann", segir Ville Niinistö, formaður borgara- og neytendanefndar Norðurlandaráðs.

Borgara- og neytendanefndin telur að það ganga gegn samstarfssáttmála Norðurlanda að Danir vísi norrænum ríkisborgurum úr landi vegna þess að þeir þurfa á félagslegri aðstoð að halda.

„Það á að vera einstakt að vera Norðurlandabúi. Svíi sem býr í Danmörku á að njóta sömu réttinda og Dani sem býr í Svíþjóð. Ef dönsk stjórnvöld framfylgja þessum reglum á annan hátt en gert er í Finnlandi, á Íslandi, í Noregi og Svíþjóð er Norðurlandabúinn ekki lengur einstakur", segir hans Wallmark, fulltrúi í nefndinni.

Fjölmiðlar hafa undanfarnar vikur fjallað mikið um að Danir vísi norrænum ríkisborgurum úr landi í trássi við norræna samninga. Meðal annars hefur komið í ljós að barnshafandi íslenskri konu var vísað úr landi frá Danmörku haustið 2009.

Ákvörðun um að boða danska ráðherranna á fund nefndarinnar var tekin þegar nefndin kom saman til fundar á Grænlandi mánudaginn 28. júní.

Tengiliðir

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org

Tengt efni
  • Politiken: Danir vísar norrænum ríkisborgurum úr landi (News Item)

    „Danir vísa Norðmönnum, Svíum, Finnum og Íslendingum úr landi í trássi við norræna samninga“, segir í frétt danska dagblaðsins Politiken 7. júní.

  • Danir brjóta norræna samninga þegar þeir vísa fólki úr landi (News Item)

    Brottvísun norrænna ríkisborgara á félagsaðstoð veldur norrænum stjórnmálamönnum áhyggjum. Komið hefur í ljós að það eru nær eingöngu Danir sem vísa fólki úr landi.

  • Fundur í Norðurlandaráði, viku 26 (Event)

    Sumarfundir Norðurlandaráðs. Skapandi atvinnugreinar í Færeyjum og sjálfstæði og umönnun afbrotamanna á Grænlandi eru meðal þeirra málefna sem fjallað verður um á sumarfundi Norðurlandaráðs. Menningar- og menntanefnd fer til Svalbarða, en Velferðarnefndin heimsækir sveitarfélögin Þrándheim og Björgvin. Samkvæmt hefðinni fundar forsætisnefndin í því landi sem fer með formennsku í Norðurlandaráði, en á þessu ári er það Ísland.