Norðurlönd ætla aftur að styðja óháða fjölmiðla á rússnesku í Eystrasaltsríkjunum

12.04.16 | Fréttir
Mediabevakning
Photographer
Magnus Fröderberg
Árið 2016 kom Norræna ráðherranefndin á fót styrktaráætlun til stuðnings verkefnum sem tengjast fjölmiðlum á rússnesku í Eystrasaltslöndunum. Verkefnið tókst vel og á fundi sínum 12. apríl sl. ákvað norræna samstarfsnefndin að verja 2,2 milljónum danskra króna til að halda starfinu áfram á árinu 2016.

Fjölmiðlastyrkir Norrænu ráðherranefndarinnar eru veittir til að efla og stuðla að stofnun og vexti óháðra fjölmiðla á rússnesku, og þar með að styrkja lýðræðisþróun og félagslega aðild í Eystrasaltsríkjum. Eins og staðan er nú fær meginhluti rússneskumælandi íbúa Eistlands, Lettlands og Litháens eingöngu fréttir og fréttatengt efni frá rússnesku ríkissjónvarpsstöðvunum.

Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Eystrasaltsríkjunum hefur umsjón með styrktaráætlununum.

Fjölbreytt styrktaráætlun

Í Eistlandi verður aftur veittur styrkur til opinberu sjónvarpsrásarinnar ETV+, sem sendir út á rússnesku. Í Lettlandi verður lögð áhersla á að veita styrki til námskeiðahalds í þeim tilgangi að auka hæfni blaðamanna, en í Litháen verður reynt að auka getu manna til að átta sig á nýrri fjölmiðlaflóru, það sem nefnt er fjölmiðlalæsi (Media Litteracy).

„Þau markmið sem við höfum sett okkur með styrkjunum samsvara beint þörf sem er til staðar í móttökulöndunum, og sá góði árangur sem hefur náðst er merki um það hversu vel samstarf okkar við Eystrasaltsríkin gengur,“ segir Kenneth Broman, starfsmannastjóri á skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar.

Starfsemin er öll í samstarfi við staðbundna aðila og fjármögnunin kemur frá fleiri aðilum en Norrænu ráðherranefndinni.