Document Actions

Norðurlönd eiga að skipta máli í ESB

- Við eigum að fjarlægja óþarfa stjórnsýsluhindranir svo Norðurlönd geti verið stökkpallur fyrir fyrirtæki til að sækja á markað í Evrópu, sagði Bertel Haarder, samstarfsráðherra Dana, á fundi um Norðurlönd og ESB á miðvikudag.

26/11 2009
Bertel Haarder

Við eigum að fjarlægja óþarfa stjórnsýsluhindranir, svo Norðurlöndin geti verið stökkpallur fyrir fyrir sókn fyrirtækja í Evrópu, sagði Bertel Haarder samstarfsráðherra Dana.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Johan Tiedemann staðgengill samstarfsráðherra Svía var sammála Haarde. Hann lýsti Norðurlöndunum sem ríkjum í vinasambandi sem ekki mætti að grafa undan með stjórnsýsluhindrunum.

- Norðurlöndin eiga að vera miklu duglegri við að taka upp löggjöf ESB á samræmdan hátt, benti Tiedemann á.

Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, taldi að Norðurlöndin gætu haft miklu meiri áhrif á lagasetningu í ESB.

- Við getum komið með hugmyndir og haft áhrif á löggjöf ESB, svo kveðið verði sterkara að orði um sjálfbærni í sjávarútvegsstefnunni, sagði hann.

Á umhverfissviði hefur Dönum, Finnum og Svíum tekist að setja mark sitt á stefnu ESB sagði Gunnhildur Lily Magnúsdóttir lektor, sem gerði grein fyrir rannsóknaniðurstöðum sínum í pallborðsumræðum.

Hún sagði frá því að jafnvel þó norrænu ESB-ríkin þrjú hafi minna en sjö prósent af atkvæðum í ráðherranefnd ESB, hafi þau getað notfært sér umhverfisvæna ímynd Norðurlanda til að hafa áhrif á umhverfisstefnu sambandsins.

Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar ítrekaði að möguleg aðils Íslands að ESB myndi styrkja rödd Norðurlanda í Evrópu, ekki síst í málefnum Norður-Atlantshafsins.

Sterk samstarfshefð Norðurlanda hefur einnig haft mikil áhrif á mótun Eystrasaltsstefnu ESB, benti Colin Wolfe á, en hann er skrifstofustjóri aðalskrifstofu um byggðastefnu í Bussel.

- Sterk samstarfshefð Norðurlanda hefur einnig haft mikil áhrif á mótun Eystrasaltsstefnu ESB, benti Colin Wolfe á, en hann er skrifstofustjóri aðalskrifstofu um byggðastefnu í Bussel.

Ole Schmidt, yfirmaður hnattvæðingarmála hjá dösnku atvinnurekendasamtökunum, taldi það erfitt verkefni að sameina Eystrasalið undir einn hatt.

Jan Høst Schmidt, yfirmaður skrifstofu framkvæmdastjórnar ESB í Danmörku, sagði Eystrasaltsstefnuna vera kjörið tækifæri til að hafa bein áhrif á stefnu ESB.

- Þess vegna er það afar mikilvægt að Norræna ráðherranefndin þrýsti á um að stefnan komist til framkvæmda og einnig þau mörgu verkefni sem þar er lýst, sagði Schmidt að lokum.

Námstefnan var haldin hjá Norrænu ráðherranefndinni og skipulögð af framkvædastjórn ESB og Norðurlöndum í brennidepli í Danmörku.

Tengiliðir

Louise Hagemann
Sími +45 33 96 03 31
Tölvupóstur loha@norden.org