Document Actions

Norðurlönd í fararbroddi í upplýsingatækni á heimsvísu

Danir eru eftir á lista yfir færni og notkun á upplýsinga- og samskiptatækni, Svíar eru í öðru sæti. Finnar Íslendingar og Norðmenn eru einnig á meðal tíu efstu þjóða á listanum. Þetta kemur fram í skýrslunni „The Global Information Technology report 2008-2009“.

26/03 2010

Í skýrslunni er lögð áhersla á að góð menntun, góður tæknibúnaður og nýsköpun séu drifkraftur vaxtar og forsenda þess til að vinna á efnahagskreppunni sem nú herjar á okkur.

Alþjóðaefnahagsráðið, World Economic Forum, sem gefur skýrsluna út, telur að norrænu ríkin séu einstök að því leyti að þau hafa lagt áherslu á gæði menntunar og nýsköpunarhæfni og búa yfir víðtækri getu til að nýta upplýsinga- og samskiptatækni.

„Þessi velgengni er áminning fyrir stjórnendur hvort heldur er í opinbera geiranum eða einkageiranum um að missa ekki sjónar á upplýsinga- og samskiptatækninni og hve mikilvæg hún er fyrir hagvöxt og samkeppnishæfni á krepputímum“, segir Irene Mia, skýrsluhöfundur sem starfar hjá Alþjóðaefnahagsráðinu.