Document Actions

Norðurlönd leggja 30 milljónir danskra króna í námuvinnslu og grjótnám

Norræna tengslanetið NordMin var kynnt á árlegum Bergrannsóknadögum. NordMin er tengslanet sérfræðinga sem stuðla að eða verða fyrir áhrifum af starfsemi steinefnaiðnaðarins.

28/05 2013

Ewa Björling, samstarfsráðherra Svíþjóðar, kynnti NordMin á árlegum bergrannsóknadögum.

Ljósmyndari
norden.org/Amalia Syrén

Svíar sem nú fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni voru fyrstir til að setja málið í forgang á norrænum vettvangi, með stuðningi nýrrar fjárveitingar sem er 45 milljónir danskra króna til þriggja ára. Svíar hafa valið að verja 30 milljónum danskra króna til þriggja ára til að efla norræna samkeppnishæfni á sviði námuvinnslu.

Ewa Björling, samstarfsráðherra Svía, kynnti NordMin á bergrannsóknadögunum í Luleå.
„Málmaframboð í Evrópu í framtíðinni er ofarlega á dagskrá og þar skipum við Norðurlandabúar stórt hlutverk, NordMin er mikilvægt skref í rétta átt", segir Ewa Björling.

Luleå Tekniska Universitet hefur umsjón með tengslanetinu NordMin, en skólinn er sú rannsóknastofnun sem er fremst í Svíþjóð á sviði námu- og steinefnavinnslu Verkefni þeirra felst í því samræma tengslanet skipað sérfræðingum hagsmunaaðila frá iðnaði, rannsóknargeiranum, ríkisstjórnum og svæðum á Norðurlöndum.

NordMin stjórn er skipuð af ráðherranefnd um atvinnulíf (MR-NER).
 




Tengiliðir

Pouline Terpager Rasmussen
Sími +45 33 96 02 93
Tölvupóstur ptr@norden.org

Hafa samband við Luleå Tekniska Universitet: Pär Weidhed sími: +46 920-491371 par.weihed@ltu.se