Document Actions

Norðurlönd leggja áherslu á kynbundin réttindi og réttindi kvenna til að taka ákvörðun um barneignir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna

Norrænu ríkin vilja að ákvæði um kynferðisleg réttindi og réttindi kvenna til að taka ákvörðun um barneignir verði sett inn í lokayfirlýsingu árlegrar Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (CSW) sem haldin er í New York. Ágreiningur innan kvennanefndarinnar í fyrra varð til þess að ekki tókst að komast að sameiginlegri niðurstöðu, sem olli deilum einnig í ár. Maria Arnholm, jafnréttisráðherra Svía, sem var að koma heim frá ráðstefnunni er þó vongóð.

09/03 2013

„Ég er vongóð um að samkomulag náist sem muni verða öllum konum og stúlkum í heiminum til góða. Veikt samkomulag í ríkjum heims gagnast þeim ekki, og heldur ekki veikt samkomulag innan CSW", segir Maria Arnholm, sem er formaður ráðherranefndar jafnréttismála innan Norrænu ráðherranefndarinnar í ár.

Í fyrra stóðu ESB ríkin saman, en Sýrland og Íran skýldu sér á bak við stöðu Vatíkansins, um að minnka umræðuna um réttindi kvenna til að taka ákvörðun um barneignir. Arnholm telur að mikilvægt sé nú að komast að samkomulagi um ákvörðun sem hægt er að framkvæma og ekki er útþynnt.

„Við leggjum metnað í að samkomulagið verði greinagott. Við erum hér til að verja þau réttindi sem þegar eru í höfn. Sérstaka áherslu leggja Svíþjóð og Norðurlöndin öll á heilbrigðismál sem tengjast kynferði og réttindum kvenna til að taka ákvörðun um barneignir", segir Maria Arnholm.

Samningaviðræður á Kvennaráðstefnu sameinuðu þjóðanna CSW eru hafnar og munu halda áfram til 15. mars í New York. Yfirlit yfir norræn mál á CSW er á vefsíðunni: www.norden.org/csw.

Tengiliðir

Heidi Orava
Sími +45 21 71 71 48
Tölvupóstur heor@norden.org

Erik Scheller, pólitískur ráðgjafi hjá Maria Arnholm netfang: erik.scheller@regeringskansliet.se, Sími +46 70 221 94 93