Undirritaður hefur verið samningur milli Norðurlanda og Andorra um upplýsingamiðlun í skattamálum. Samningurinn er liður í sameiginlegri baráttu gegn alþjóðlegum skattaundanskotum og hluti af langtímaverkefni Norrænu ráðherranefndarinnar.
Norðurlönd hafa enn á ný undirritað samninga gegn skattaundanskotum. Í þetta sinn við Andorra.
Upplýsingaskiptasamningurinn veitir norrænum skattayfirvöldum og yfirvöldum í Andorra kost á því að fá upplýsingar um aðila sem reyna að komast hjá því að greiða skatta af tekjum og/eða innstæðum. Samningurinn auðveldar einnig aðgang að upplýsingum um fjármagn og tekjur sem ekki hafa verið gefnar upp í heimalandinu.
Með þessum samningi hefur Andorra nú gert meira en tólf samninga og hefur það í för með sér að ríkið færist nú á "hvítan lista" OECD. Það þýðir að Andorra uppfyllir kröfur OECD um gagnsæi og upplýsingamiðlun í skattamálum.
Samningurinn var undirritaður við athöfn í sendiráði Svíþjóðar í París þann 24. febrúar.
Torsten Fensby, verkefnisstjóri hjá Norrænu ráðherranefndinni. Sími +33678251289