Document Actions

Norðurlönd setja mark sitt á stefnu ESB fyrir Eystrasaltið

Norðurlönd hafa með starfi Norrænu ráðherranefndarinnar sett sitt mark á nýja stefnu ESB í málefnum Eystrasaltssvæðisins. Á miðvikudag kynnti framkvæmdastjórn ESB nýju stefnuna og röð viðburða í aðildarríkjum ESB.

10/06 2009
Hav
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Stefnan, sem á að efla samstarf aðildarríkjanna ESB á Eystrasaltssvæðinu, hefur fjögur meginmarkmið: Að bæta lífríki Eystrasalts, bæta kjör íbúa og gera svæðið aðgengilegra og meira aðlaðandi fyrir fjárfesta svo og að efla öryggi.

Fyrr á þessu ári lagði Norræna ráðherranefndin fram tillögur til framkvæmdastjórnar ESB um stefnumótun og hvernig norrænt samstarf gæti stuðlað að því að ná fram markmiðum Eystrasaltsstefnunnar.

- Norræna ráðherranefndin hefur haft mikil áhrif á stefnuna. Við lítum á ráðherranefndina sem mikilvægan samstarfsaðila, ekki síst þegar kemur að framkvæmd verkefna, segir Ann-Kerstin Myleus, starfandi deildarstjóri á aðalskrifstofu framkvæmdastjórnar ESB um byggðastefnu.

Ráðherranefndin ber meðal annars ábyrgð á stofnun sjóðs til að efla nýsköpun og rannsóknir á Eystrasaltssvæðinu. Í nýju Eystrasaltsstefnunni er víða komið inn á hlutverk ráðherranefndarinnar.

-Við viljum stuðla að framkvæmd Eystrasaltsstefnunnar á völdum svæðum, og leggja okkar af mörkum til að ná árangri. Ráðherranefndin hefur mikla reynslu af samstarfi á Eystrasaltssvæðinu og við höfum myndað einstakt tengslanet milli Norðurlandanna, Eistlands, Lettlands og Litháen og einnig Norðvestur-Rússlands, sagði Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri ráðherranefndarinnar.

Ráðherranefndin getur einnig stuðlað að sterkum innri markaði við Eystrasaltið með því starfi sem nú fer fram við að afnema stjórnsýsluhindranir. Í Eystrasaltsstefnunni er nefnt að stjórnsýsluhindranir hamli velferð á svæðinu.

Hugmyndin að Eystrasaltsstefnu ESB kviknaði árið 2006. Svíar sem taka við formennsku í ESB í júlí næstkomandi, leggja mikla áherslu á málefni Eystrarsaltssvæðisins í formennskuáætlun sinni.