Norðurlönd sýnileg á COP15
Norrænt samstarf mun bæði sjást og heyrast á loftslagsráðstefnunni COP15 sem hófst í Kaupmannahöfn á mánudag. JEnda þótt norrænu ríkin sitji hvert fyrir sig við samningaborðið, leggur Norræna ráðherranefndin sitt af mörkum til að knýja fram hagstæða samninga í Kaupmannahöfn.
Norræna ráðherranefndin fjármagnar þátttöku norræns starfshóps og loftslagssérfræðinga hvaðanæva að úr heiminum. Norræni COP-15 hópurin hefur m.a. skilað greiningum og skýrslum um mikilvæg umfjöllunarefni og staðið fyrir fundum alþjóðlegra samningamanna um loftslagsmál.
Í ráðstefnumiðstöðinni Bella Centret, þar sem loftslagsráðstefnan fer fram, er norrænt loftslagsstarf kynnt í sameiginlegum sýningarbás. Um 15 norrænar stofnanir standa að sýningarbás Norrænu ráðherranefndarinnar en þar má sjá ýmislegt áhugvert sem tengist t.d. málefnum norðurskautssvæðanna, rannsóknum og umhverfisvænum orkulausnum.
Myndskeið frá sýningarbás Norrænu ráðherranefndarinnar í BellaCenter í Kaupmannahöfn.
Norræna ráðherranefndin stendur auk þess fyrir og fjármagnar ýmsa hliðarviðburði í ráðstefnumiðstöðinni á meðan á COP15 stendur.
Alls taka 90 manns þátt í ýmsum viðburðum sem tengjast viðburðum á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar í Bella Center, en alls er gert ráð fyrir um 15.000 þátttakendum á ráðstefnunni sem stendur yfir í tvær vikur.
Ráðherranefndin tekur einnig þátt sem fjármögnunaraðili og sýnandi á viðburði sem fjallar um norðurskautssvæðið, sem er hluti af COP15 og fer fram á Norðurbryggju.
Að auki eru Norðurlönd með í listaverkefninu Rethink í gegnum Norræna menningarsjóðinn í en það er liður í opinberri menningardagskrá á meðan á loftslagsráðstefnunni stendur.
Önnur COP-15 verkefni sem ráðherranefndin fjármagnar eru sýningar og kvikmyndir tengdar Norðurskautssvæðinu.
