Norðurlönd veðja á vaxtarfyrirtæki
Mikið er af nýstofnuðum fyrirtækjum á Norðurlöndum, en þau standa sig verr ef t.d.er miðað við fyrirtæki í Bandaríkjunum. Fjöldi nýstofnaðra fyrirtækja kemur ekki fram í vaxandi hagvexti.
Þess vegna hafa norrænu ráðherrarnir náð samkomulagi um að hrinda í framkvæmd átaksverkefni með það að markmiði að auka vöxt norrænna sprotafyrirtækja – ekki síst í samkeppni á alþjóðamarkaði.
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
Þess vegna hafa norrænu ráðherrarnir náð samkomulagi um að hrinda í framkvæmd átaksverkefni með það að markmiði að auka vöxt norrænna sprotafyrirtækja – ekki síst í samkeppni á alþjóðamarkaði.
Á fundi í Kaupmannahöfn þann 25.október 2010 urðu ráðherrarnir sammála um að stofna norræna þekkingarmiðstöð til þess að sameina og efla aðgerðir á sviði frumkvöðlastarfsemi. Frumkvöðlamenntun og átaksverkefni með það að markmiði að auka tækifæri til vaxtar fyrir hraðvaxandi sprotafyrirtæki verða mikilvæg viðfangsefni miðstöðvarinnar.
Brian Mikkelsen efnahags- og atvinnumálaráðherra Dana um sjálfbæra byggingastarfsemi.
Þekkingarmiðstöðin er eitt af mörgum leiðarljóssverkefnum í nýrri þriggja ára stefnu – "Norrænni samstarfsáætlun um nýsköpunar- og atvinnustefnu 2011-2013" – sem ráðherrarnir hafa samþykkt.
Auk norrænnar þekkingarmiðstöðvar, er norrænn nýsköpunarvettvangur liður í áætluninni, norræn stefna um samfélagsábyrgð fyrirtækja, sameiginleg markaðssetning norrænna nýsköpunarfyrirtækja og skapandi iðnaðar, nýsköpun í gegnum opinber innkaup og eftirlit með áherslu á heilbrigðisgeirann.
Að auki er viðamikil áætlun um vistvæna byggingastarfsemi.
Norrænu atvinnumálaráðherrarnir vilja draga úr orkuneyslu í húsum og jafnframt skapa betri aðstæður fyrir útflutning norrænna orkulausna. Til lengri tíma litið er markmiðið að draga til muna úr koltvísýringslosun ríkjanna. Um þessar mundir er orkunotkun í húsum um 40% af heildarorkuneyslu iðnríkjanna.
Takmörkun á orkunotkun í húsum á meðal annars að gerast með því að nýta nýjar hugmyndir um:
- skilvirkari orkunotkun
- aukin gæði byggingarefna
- endurnýjun húsnæðis með tilliti til orkunotkunar
Nálgast má Norrænu nýsköpunarvogina hér á norden.org
Nánar um loftslagsvæna byggingastarfsemi á norden.org.
Nálgast má Health innovation in the Nordic countries á norden.org
Nánar um KreaNord
Tengiliðir
Helena Wallin
Sími
+45 3396 0351
Tölvupóstur
hw@norden.org
Anne Sofie Bender
Sími
+45 3396 0274
Tölvupóstur
asb@norden.org
Pouline Terpager Rasmussen
Sími
+45 33 96 02 93
Tölvupóstur
ptr@norden.org
