Mjög mikill áhugi er á Norðurlöndum og því hvernig þau hafa tekist á við efnahagsvandann nú þegar stjórnmálamenn, fulltrúar atvinnulífs, alþjóðastofnana og fjölmiðla funda í vikunni á árlegri efnahagsráðstefnu, World Economic Forum í Davos. Norræna ráðherranefndin lagði, í tengslum við ráðstefnuna, til efni í tímaritið The Nordic Way.
Mikill áhugi var á Norðurlöndum og hvernig þau hafa tekist á við efnahagsvandann á Davos ráðstefnunnni.
Gott viðbragðskerfi vegna kreppuástands, lærdómar af fyrri kreppum í bland við traust á ríki og stofnunum þess, svo og góður skammtur af einstaklingshyggju. það er sú niðurstaða sem greinahöfundar í tímaritinu The Nordic Way komast að en Norræna ráðherranefndin gaf ritið út ásamt Global Utmaning, Investor og Norræna félaginu. Þjóðarleiðtogar eru þessa vikuna í Davos og ritið The Nordic Way, sem sænskir fjölmiðlar hafa fjallað um á undanförnum dögum hefur verið upptaktur til umræðna um ýmis alþjóðleg úrlausnarefni.
Síðar á þessu ári hittast norrænu forsætisráðherrarnir á árlegri Hnattvæðingarráðstefnu. Þar koma fram nýjar hugmyndir að verkefnum sem eiga að styrkja enn frekar norrænt samstarf . Hnattvæðingarþingið á að vera forsætisráðherrunum og öðrum fulltrúum andagift í pólitískum verkefnum og uppspretta góðra hugmynda til að takast á við þau viðfangsefni og tækifæri sem hnattvæðingin skapar.