Norðurlöndin eiga að vera í forystu í loftslagsmálum
Það er þörf á norrænni forystu við gerð nýs alþjóðlegs samkomulags um loftslagsmál. Norðurlöndin ættu að verða fyrirmynd, til að mynda með því að skuldbinda sig til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda enn meira en nú er raunin. Þetta sagði Tove Ryding sérfræðingur í loftslagsmálum hjá Greenpeace samtökunum á námstefnu sem haldin var hjá Norrænu ráðherranefndinni í Kaupamannahöfn á miðvikudag.
Ryding telur Norðurlöndin eiga að minnka losun um a.m.k. 40 prósent fram til ársins 2020, miðað við árið 1990. Það væri jafnframt í takt við það forystuhlutverk sem Norðurlöndin hafa nú þegar í loftslagsmálum, þar sem loftslagsráðstefnan, COP15, verður haldin í Kaupmannahöfn í desember og Svíar eru að taka við formennsku í ESB.
Ryding hefði viljað að loftslagsyfirlýsingin sem norrænu forsætisráðherrarnir samþykktu á dögunum hefði verið metnaðarfyllri og betur skilgreind. Í yfirlýsingunni stendur meðal annars að stöðva eigi aukningu losunar gróðurhúsalofttegunda í síðasta lagi árið 2020, og markmiðinu skuli náð með því að iðnríkin skuldbindi sig til að minnka losun mikið á næstu árum.
Norski loftslagssérfræðingurinn Harald Dovland var varkár í yfirlýsingum en vonaði þó að möguleikar væru á að nýr loftslagssamningur yrði samþykktur í Kaupmannahöfn. Hann lagði jafnframt áherslu á að hæpið væri að frá öllum atriðum yrði gengið í desember.
Christian Ibsen, samningamaður um loftslagsmál frá danska loftslags- og orkumálaráðuneytinu, lagði áherslu á að, að mörgu þyrfti að huga, ekki síst í hvernig iðnríkin gætu stutt fátækustu lönd heims í baráttunni gegn loftslagsbreytingunum. Tryggvi Felixson, deildarstjóri umhverfisdeildar Norrænu ráðherranefndarinnar, sagði Norðurlöndin hafa gefið gott fordæmi með því að ákveða að nýta Norræna þróunarsjóðinn í þessu sjónarmiði. Norrænu samstarfsráðherrarnir hafa ákveðið að verja tugmilljónum evra á ári í loftslagsverkefni í þróunarlöndunum.
Tryggvi Felixson lagði áherslu á að loftslagsmál hefðu lengi verið forgangsmál í norrænu samstarfi. Hann vísaði þar meðal annars til loftslagskýrslu sem Norræna ráðherranefndin lét gera þegar árið 1990. Þá gerði Tryggi grein fyrir norrænum loftslags- og orkutengdum aðgerðum, og nefndi sem dæmi áætlun um öndvegisrannsóknir, Norræna loftslagsdaginn og orkuráðstefnuna Nordic Climate Solutions.
Námstefnan á miðvikudag var haldin í samstarfi upplýsingaskrifstofunnar Norden i Fokus, Norrænu ráðherranefndarinnar og norrænu COP15-hópsins, en í honum eru loftslagssérfræðingar frá öllum norrænu ríkjunum. Námstefnan var liður í fundaröð um loftslagsmál en fundir verða haldnir í öllum norrænu höfuðborgunum sem undanfari loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin verður í Kaupmannahöfn.
Norrænt samtarf um loftslagsmál
