Norðurlöndin fagna tuttugu ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Nú eiga að börn og unglingar að verða upplýsingagjafar og þátttakendur í samfélaginu. Af þessu tilefni hefur Norræna ráðherranefndin gefið út nýja bók. Bókin er gefin út í tilefni af því að 20 ár eru liðin frá undirritun Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Í bókinni eru 23 greinar um það hvernig, með ýmsum aðgerðum, má gera börn og unglinga að þátttakendum í ákvarðanatöku um málefni sem skipta þau sjálf máli og einnig samféalgið í heild.
Aðgerðirnar eru allar tengdar mikilvægum hlutum í daglegu lífi barna og unglinga. Leikskóla og skóla, menningu, tómstundum og nærumhverfi og einnig þátttöku í pólitík. Nokkrar greinanna fjalla einnig um það mikilvæga málefni, hvernig hjálpa megi börnum og unglingum með ýmis konar fötlun að standa á eigin fótum.
"Í bókinni beinum við aðallega sjónum að réttindum barna hvað varðar þátttöku, í samræmi við 12. grein Barnasáttmálans. Þar segir að hlusta eigi á börn og að þeim skuli gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í málefnum sem þau varða", segir Aina Winsvold frá norsku stofnuninni um rannsóknir á uppeldi, velferð og öldrun, NOVA.
Hún ásamt samstarfskonu sinni, Anne Solberg, ritstýrði bókinni.
Höfundarnir vona að dæmin geti orðið öðrum, sem vinna með börn og unglinga, hvatning og uppspretta hugmynda.
Nánari upplýsingar um bókina fást hjá:
Aina Winsvold, Norsk institutt for forskning om oppvekst, velferd og aldring (NOVA), aina.winsvold@nova.no
Bókin er unnin við stofnunina Norsk institutt for forskning om oppvekst, velferd og aldring (NOVA) fyrir Norrænu barna- og unglinganefndina (NORDBUK) hjá Norrænu ráðherranefndinni.
