Norðurlöndin geta náð meiri árangri en ESB
Norrænt samstarf getur orðið mun umfangsmeira en Evrópusamstarfið. Þetta er skoðun Gunnars Wetterberg, sem tók þátt í námstefnu flokkahóps miðjumanna í norska stórþinginu mánudaginn 12. apríl.
Myndband: Norrænt samstarf í framtíðinni, Gunnar Wetterberg
"ESB kemst ekki með tærnar þar sem norrænt sambandsríki væri með hælana", sagði sænski sagnfræðingurinn Gunnar Wetterberg við fulltrúa flokkahóps miðjumanna í Norðurlandaráði á mánudag. Hann lagði á það áherslu að ekki mætti líta á norræna samstarfið sem andstæðu við Evrópusamstarfið, fremur sem viðbót.
Wetterberg kynnti hugmyndir sínar um stofnun norræns sambandsríkis og sagði möguleikana miklu fleiri en gagnsemi formlega samstarfsins í dag. Hann telur ekki að næstu tvær kynslóðir innan ESB muni áorka því sem unnist gæti með norrænu samstarfi ef sett væri á stofn norrænt sambandsríki.
Margir þingmanna flokkahóps miðjumanna voru efins um hugmyndina um sambandsríki, ekki síst í ljósi sambandssögu Norðurlanda.
„Ef maður teygir sig eftir stjörnunum nær maður alla vega upp í trjátoppana", var svar Wetterbergs við þeim efasemdum.
Dagfinn Høybråten er sammála Wetterberg hvað varðar tækifærin í norræna samstarfsinu.
„Tækifærin í norræna samstarfsinu eru mjög vanmetin, sérstaklega af norrænum stjórnmálamönnum. Ég tel að menn hafi verið of uppteknir af því að horfa líta fram hjá norrænu ríkjunum í stað þess að horfa til Norðurlanda. Nú er tímabært að snúa sér aftur að norræna samstarfinu og skoða hvernig byggja megi áfram á því", sagði Høybråten og benti þar meðal annars á norræna öryggis- og varnarmálasamstarfið sem væri mikilvægt samstarfssvið til framtíðar. Høybråten telur einnig að endurskoða eigi regluna um einróma ákvarðanir í norrænu samstarfi..
Reglan er hindrun í norræna samstarfinu, og Lars Hovbakke Sørensen frá Háskólanum í Árósum telur einnig að það beri að afnema hana. Hann kynnti fimm aðgerðir sem hann telur nauðsynlegar í endurnýjuðu norrænu samstarfi.
„Gera verður samstarfið meira bindandi. Afnema verður regluna um einróma ákvarðanir og setja reglu um ákvarðanir sem byggja á einföldum meirihluta. Það mun auka lögmæti, sagði Lars Hovbakke Sørensen á námstefnu flokkahóps miðjumanna á mánudag.
Þá vill hann að að Norðurlandaráði endurspegli nefndarfyrirkomulagið hjá ESB. Bein kosning til Norðurlandaráðs og stofnun fleiri norrænna háskóla eru einnig brýn sameiginleg hagsmunamál, segir danski prófessorinn. Þá þarf að bæta þekkingu um sögu Norðurlanda og efla samstarf ungs fólks, þannig að komandi kynslóðir geri sér grein fyrir þýðingu norræna samstarfsins.
Gunnar Wetterberg og Lars Hovbakke Sørensen tóku þátt í námstefnu flokkahóps miðjumanna þar sem ræddar voru hugmyndir um hvernig norrænt samstarf ætti að vera í framtíðinni. Námstefnan var haldin í norska stórþinginu, sem undanfari aprílfunda Norðurlandaráðs í Ósló dagana 13. og 14. apríl.
Skráning
Aðeins skráðir þátttakendur geta setið fundinn. Sendið ósk um skráningu til Henrik Killianders á netfangið heki@norden.org
Tengiliðir
Terhi Tikkala
Sími
+358 9 432 2559
Tölvupóstur
terhi.tikkala@eduskunta.fi
Silje Bergum Kinsten
Sími
+45 33 96 02 51
Tölvupóstur
siki@norden.org
