Document Actions

Norðurlöndin sameinast um stuðning við hvít-rússneskan háskóla í útlegð

Norðurlöndin eru reiðubúin til að veita hvít-rússneska háskólanum, European Humanities University (EHU) 300.000 evra styrk til viðbótar við þann stuðning sem þegar hefur verið veittur. Stuðningurinn ber vitni um styrk samstarfs Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna.

17/02 2010
Bertel Haarder

„Samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna er undirstaða þróunar öflugs og samkeppnishæfs Eystrasaltssvæðis, það sem við köllum „Top of Europe".

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Hvít-rússneskir stúdentar í útlegð eiga því von á áframhaldandi pólitískum og efnahagslegum stuðningi frá Norðurlöndunum. Norrænu samstarfsráðherrarnir munu ræða þessi mál á fundi sínum þann 18. febrúar, sem haldinn verður í Vilníus höfuðborg Litháen, en þá munu þeir meðal annars heimsækja EHU og funda með starfssystkinum sínum í Eystrasaltsríkjunum.

„Norræna ráðherranefndin vill styðja aðgerðir sem viðhalda voninni um lýðræði og eðlilegt samfélag borgaranna í Hvíta-Rússlandi.

„Norræna ráðherranefndin vill styðja aðgerðir sem viðhalda voninni um lýðræði og eðlilegt samfélag borgaranna í Hvíta-Rússlandi. Styrkur til EHU er því langtíma fjárfesting í framtíð Hvíta-Rússlands og þarmeð framtíð sameinaðar Evrópu", segir Bertel Haarder mennta- og samstarfsmálaráðherra Danmerkur.

Samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna verður eitt meginmálefni heimsóknarinnar til höfuðborgar Litháens. Á fundi samstarfsráðherranna með starfssystkinum frá Eistlandi, Lettlandi og Litháen verður meðal annars fjallað um eflingu samstarfs milli ríkjanna, Eystrasaltsstefnu ESB og Hvíta-Rússland með áherslu á EHU.

Norrænu ráðherrarnir munu einnig funda með forseta Litháen. Samstarfið milli Eystrasaltsríkjanna og Norðurlandanna hefur meðal annars haft áhrif á Eystrasaltsstefnu ESB, sem samþykkt var á formennskutímabili Svía í ESB haustið 2009.

„Samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna er undirstaða þróunar öflugs og samkeppnishæfs Eystrasaltssvæðis, það sem við köllum „Top of Europe". Þessvegna munu Danir tryggja með formennsku sinni að Norræna ráðherranefndin leggi sitt af mörkum við að hrinda Eystrasaltsstefnunni í framkvæmd.  Það mun gagnast jafnt almenningi sem atvinnulífinu“, segir Bertel Haarder.

European Humanities University (EHU) hefur, frá því að háskólinn var stofnaður í Minsk árið 1992, verið í farabroddi hvað varðar varðveislu skoðafrelsis í Hvíta-Rússlandi. Það var einnig ástæða þess að Lukasjenko forseti lét loka háskólanum árið 2004 og EHU varð að fara í útlegð til Vilníus í Litháen. Nú er EHU eina hvít-rússneska æðri menntastofnunin, sem ekki er undir stjórn og eftirliti stjórnvalda í Hvíta-Rússlandi.

EHU háskólinn er háður styrkjum frá alþjóðasamfélaginu og stuðningsaðilum. Eins og er nýtur EHU háskólinn styrkja frá ESB, fjölda evrópskra ríkisstjórna, stjórnvöldum í Bandaríkjunum, Norrænu ráðherranefndinni og einkasjóðum. Norræna ráðherranefndin hefur umsjón með styrktarsjóði EHU háskólans og sér til þess að fjármálin séu gegnsæ og öruggt sé að styrkja háskólann.

Tengiliðir

Mobil: (+45) 21 71 71 45