Norðurlöndin undirrita 102 samninginn gegn skattaundanskotum
Þriðjudaginn 12. janúar undirrituðu fulltrúar Norðurlanda upplýsingaskiptasamning við stjórnvöld á San Marino. Þessi tvíhliða samningar er liður í því starfi Norrænu ráðherranefndarinnar að stöðva skattaundanskot.
- Norrænu ríkin hafa nú gert á annað hundrað tvíhliða samninga við svokölluð skattaskjól. Þau eru ásamt öðrum ríkjum, m.a. Frakklandi og Bandaríkjunum þau ríki í heiminum sem gert hafa flesta slíka upplýsingaskiptasamninga. Þar með eru þau framarlega í alþjóðlegu starfi gegn skattaundanskotum. Þetta sagði Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar við undirritun samningsins við San Marino.
Samningurinn við San Marino var undirritaður í finnska sendiráðinu í París. Fulltrúar landsstjórnanna í Færeyjum og á Grænlandi undirrituðu samning við San Marino haustið 2009.
Upplýsingaskiptasamningurinn veitir skattayfirvöldum aðgang að gögnum um innstæður og tekjur skattskyldra þegna. Samningar af þessu tagi geta veitt aðgang að eignum og tekjum sem ekki hafa verið taldar fram í heimalandinu.
Nánari upplýsingar
Torsten Fensby,
Verkefnastjóri
Norrænu ráðherranefndinni
+33678251289
