Norðurlöndin ýta á kvikasilfurferlið
Norðurlöndin hafa lagt mikið af mörkum í ferli sem miðar að alþjóðlegum samningi um kvikasilfur, mikið hefur áunnist í samningaferlinu. Vinnan hefur farið fram jafnt innan þjóðlandanna og innan norræna ríkisstjórnarsamstarfsins, þ.e. innan Norrænu ráðherranefndarinnar.
Stór skref var stigið í átt að alþjóðlegum samningi á föstudag, á fundi umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem haldinn var í Nairobi. Ríkin komust að samkomulagi um að hefja samningaviðræður sem miðuðu að því að gert yrði samkomulag um nýtingu á kvikasilfri. Markmiðið er að bindandi samkomulag verði í höfn í síðasta lagi árið 2013.
Norðurlöndin hafa lengi unnið að því að komið yrði á alþjóðlegu samkomulagi sem fæli í sér takmörkun á nýtingu á kvikasilfri. Norræna ráðherranefndin hefur meðal annars staðið fyrir upplýsingaherferðum til að hafa áhrif á ákvarðanir á fundum umhverfisstofnunarinnar UNEP, og auk þess hefur hún staðið fyrir fjölda funda fyrir háttsetta stjórnendur undanfarin ár.
Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar er ánægður með þann árangur sem nú hefur náðst í samningaferlinu.
„Við höfum haft árangur sem erfiði og hann getum við þakkað aðgerðum bæði í þjóðlöndunum og á norrænum vettvangi. Þessi árangur er ein mikilvægasta ákvörðunin á umhverfissviðinu í mörg ár, ekki síst fyrir hafið. Jákvæð afstaða til alþjóðlegrar samstöðu boðar góðar fréttir fyrir loftslagsráðstefnuna sem haldin verður í Kaupmannahöfn í desember", segir Halldór Ásgrímsson.
Rannsóknir hafa sýnt fram að kvikasilfursmagn í umhverfinu hefur aukist í heiminum. Fjöldi ríkja hafa því hert reglur um hve mikinn fisk íbúar eiga að neyta.
Í undirbúningi er fyrsti undirbúningssamningafundur um samkomulag um kvikasilfur, áætlað er að fundurinn verði haldinn í Stokkhólmi næsta haust og verði hluti af dagskrá Svía í formennsku þeirra innan ESB. Norræna ráðherranefndin er tilbúin að taka þátt í fjármögnun ráðstefnunnar og mun leggja 400.000 danskar krónur til.
