Document Actions

Norðurskautið, Eystrasaltið og norðlæga víddin tengjast

Stefna fyrir Norðurskautið og Eystrasaltsstefna ESB eru tveir mikilvægir hlutar norðlægu víddarinnar. Fyrsta málþingið um norðlægu víddina hvetur til þess að Eystrasaltsstefnan og norðlæga víddin verði samræmdar.

26/02 2009

Á þingmannaráðstefnunni um norðlægu víddina hittast þingmenn frá norðurslóðum til að ræða sameiginleg vandamál. Þingmennirnir geta haft bein áhrif á stefnumál í norðlægu víddinni með þátttöku í ráðstefnunni, sagði Hans-Gert Pöttering forseti Evrópuþingsins við setningu fyrstu þingmannaráðstefnunnar um norðlægu víddina miðvikudaginn 25. febrúar.

Diana Wallis varaforseti Evrópuþingsins benti á Eystrasaltsstefnuna og sameiginlega stefnu fyrir Norðurskautssvæðið sem það mikilvægasta í norðlægu víddinni þegar hún ávarpaði þingið á miðvikudag.

Fjöldi þingmanna úr Norðurlandaráði tóku þátt í ráðstefnunni sem haldin var í Evrópuþinginu í Brussel dagana 25. og 26. febrúar. Norðlæga víddin er stór hluti af alþjóðasamstarfi ráðsins og er mikilvæg til að tengja Norðurlöndin og ESB nánari böndum.

- Gott nábýli og náið samstarf á Eystrasaltssvæðinu, Norðurskautssvæðinu og við Norðvestur-Rússland er eitt af áhersluatriðum formennskuáætlunar Svíþjóðar í Norðurlandaráði sagði Sinikka Bohlin forsesti ráðsins á miðvikudag.

Bohlin lagði áherslu á að það væri mikilvægt að horfa á hlutina í samhengi.

- Skoða verður loftslagsógninga, orkustefnuna og efnahagskreppuna í samhengi, þessi málefni eru afar mikilvæg fyrir norðlægu víddina. Þegar efnahagsleg umsvif aukast á norðurslóðum þá eykst mikilvægi svæðisins í efnahagslegu og öryggislegu tilliti, sagði hún.

Til þess að Eystrasaltsstefna, ESB geti orðið virk telur forseti ráðsins að nauðsynlegt sé að móta samræmda stefnu fyrir norðlægu víddina.

Christina Gestrin forseti BSPC (Baltic Sea Parliamentary Conference) og fulltrúi í forsætisnefnd Norðurlandaráðs var einnig umhugað um samræmingu í ræðu sinni fimmtudaginn 26. febrúar.

- Eitt af því sem við erum afar upptekin af er að komandi Eystrasaltsstefna verði sett í samhengi við hina nýju norðlægu vídd. Tenging norðlægu víddarinnar og Eystrasaltsstefnunnar getur fært okkur mikilvægt verkfæri til þess að virkja það sem þarf til að þróa svæðið og styrkja stöðu svæðisins í breiðara evrópsku samhengi.

Gestrin telur að Eystrasaltsstefnan og norðlæga víddin ásamt norðurskautsstefnunni sem verið er að þróa í ESB séu stefnur sem styðja hver aðra.

Norðlæga víddin fjallar um svæðisbundin úrlausnarefni á norðurslóðum þar á meðal á Íslandi, í Noregi og Rússlandi. Markmiðið er að bæta samskipti og samstarf milli ESB og aðildarríkjanna, EES og Rússlands.

Fulltrúar Norðurlandaráðs voru Sinikka Bohlin forseti Norðurlandaráðs, Lisbeth Grönfeldt Bergman (k) frá Svíþjóð, Christina Gestrin (sv) frá Finnlandi, Paavo Arhinmäki frá Finnlandi, Berit Brørby (S) frá Noregi og Bente Dahl (RV) frá Danmörku.

Næsti fundur verður haldinn í Noregi árið 2011.