Document Actions

Norðurskautið í brennidepli á vorþingi Norðurlandaráðs

Norðurskautið verður þema þegar Norðurlandaráð heldur sitt fyrsta vorþing þann 23. mars á Íslandi. Umræðurnar, sem munu fjalla um málefni Norðurskautsins m.a. frá umhverfis-, jafnréttis og velferðarsjónarmiði, verða sendar út beint á netinu frá Alþingishúsinu í Reykjavík.

01/02 2012
Miljø, forskning og urfolk får støtte fra det Arktiske samarbeidsprogrammet
Ljósmyndari
Nikolaj Bock/Norden.org

Hin fjölmörgu og flóknu pólitísku úrlausnarefni á Norðurskautssvæðinu eru eitt af þremur þemum í formennskuáætlun Finna í Norðurlandaráði 2012.

Þar ber hæst efling þróunar sem tryggir góð lífsskilyrði þeirra einstaklinga sem búa á Norðurskautssvæðinu. Mikilvægt er að finna jafnvægi milli réttinda íbúanna og verndunar viðkvæmrar náttúru svæðisins. Þetta er mikilvægt vegna þess að alþjóðlegur áhugi á nýtingu náttúrauðlinda á Norðurskautssvæðinu vex og einnig áhugi á að nýta samgönguleiðir á svæðinu í framtíðinni. Fjölmargir hagsmunaaðilar tengjast Norðurskautssvæðinu, staðbundnir, svæðisbundnir og alþjóðlegir.

Í ár verður í fyrsta sinn tilkynnt um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og þau afhent á þemafundinum. Verðlaunaafhendingin fer fram þann 22. mars.

Í aðdraganda þemafundar Norðurlandaráðs um Norðurskautssvæðið verður marsfundur ráðsins haldinn dagana 21. - 22. mars.

Tengiliðir

Tina Bostrup
Sími +45 33 96 04 52
Tölvupóstur tib@norden.org

Heidi Orava
Sími +45 33 96 04 60
Tölvupóstur heor@norden.org

Tengt efni