Document Actions

Norræn blaðamennska í hálfa öld

Norræna blaðamannamiðstöðin, NJC, fagnar hálfrar aldar afmæli með stórri ráðstefnu, þar sem horft verður um öxl og fram á veginn. Ráðstefnan verður í Árósum. Blaðamenn frá öllum Norðurlöndunum, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Danmörku, Íslandi, Færeyjum, Álandseyjum og Grænlandi, hafa sótt endurmenntunarnámskeið hjá NJC undanfarin 50 ár.

23/10 2007

Anna Sharogradskaya framkvæmdastjóri Regional Press Institute í Pétursborg í Rússlandi verður meðal ræðumanna á hátíðarráðstefnu NJC, sem haldin verður á Varna við Árósa dagana 24. og 25. október. Hún hefur menntað blaðamenn í Norðvestur-Rússlandi í samstarfi við NJC í mörg ár.

Aðrir ræðumenn verða frá arabísku sjónvarpsstöðinni Al Jazeera, norrænir sérfræðingar um blaðamennsku og nokkrir af bestu fréttamönnum Norðurlanda. Allir munu þeir fjalla um framtíð blaðamennskunnar.

"Markmið ráðstefnunnar er að kynna einstaka stöðu Norðurlanda hvað varðar tjáningarfrelsi, þessu megum við aldrei gleyma. Það er ástæða til að fagna afmæli Norrænu blaðamannamiðstöðvarinnar" segir Steen K. Rasmussen stjórnandi NJC.

Norræna blaðamannamiðstöðin var stofnsett árið 1957 af norrænu blaðamannasamtökunum með stuðningi frá Norðurlandaráði. Stofnunin hefur frá upphafi haft aðsetur í Vennelystparken í Árósum, en þar var blaðamannadeild Háskólans í Árósum (síðar Blaðamannaháskóli Danmerkur) til húsa. Í fyrstu hét NJC blaðamannanámskeið, en eftir það blaðamannamiðstöð. Í kjölfar átakatíma var UPDATE "Center for journalistisk kompetenceudvikling" við Blaðamannaháskóla Danmerkur – falið að sjá um miðstöðina fram til ársins 2009.