Norræn fiskveiðistefna verður evrópsk
Tillaga Evrópusambandsins að nýrri fiskveiðistefnu er efnislega undir miklum áhrifum frá norrænum hugmyndum. Norðurlandaráð leggur áherslu á sameiginlega afstöðu Norðurlanda í fiskveiðimálum í samningaviðræðum við ESB.
Umhverfisnefnd Norðurlandaráðs hvetur norrænu ríkin til að taka höndum saman til að vera betur undirbúin undir samningaviðræður um nýja fiskveiðstefnu ESB.
- Ljósmyndari
- Ane Cecilie Blichfeldt
Tillögur framkvæmdastjórnar ESB að nýrri fiskveiðistefnu voru kynntar í júlí. Þar er lögð áhersla á aukið vægi sjálfbærra fiskveiða, bann við brottkasti og jafnframt að sjávarútvegsfyrirtæki taki meiri þátt í stjórnun auðlinda hafsins. Tillagan leggur einnig áherslu á mikilvægi dreifðar auðlindastjórnunar.
Tillagan endurspeglar þær hugmyndir sem Norðurlandaráð afhenti framkvæmdastjórninni árið 2009. Nú beitir umhverfisnefnd ráðsins þrýstingi til að tryggja að norræn sjónarmið verði ekki undir í málsmeðferðinni í Brussel.
- Þegar fjallað verður um fiskveiðistefnuna í Evrópuþinginu og á vettvangi ríkisstjórna ESB-ríkjanna er mikilvægt að leggja áherslu á meginreglurnar um sjálfbærni og dreifstýringu auðlindanna segir Ann-Kristine Johansson (S- Svíþjóð), formaður umhverfisnefndar ráðsins.
Umhverfisnefndin hvetur nú norrænu ríkin til að taka höndum saman og greina hvaða afleiðingar tillaga framkvæmdastjórnarinnar getur haft þegar litið er til heildrænna hagsmuna Norðurlanda, sv þau geti betur undirbúið sig fyrir komandi samningaviðræður.
Norðurlandaráð hittist 20. - 21. september og kemur síðan saman á árlegu þingi 1.- 3. nóvember í Kaupmannahöfn. Gert er ráð fyrir að ný fiskveiðistefna ESB verði samþykkt í síðasta lagi í janúar 2013.
Tengiliðir
Tryggvi Felixson
Sími
+45 3396 0453
Tölvupóstur
tfe@norden.org
Michael Funch
Sími
+45 33960332
Tölvupóstur
mifu@norden.org
