Norræn-kínverskur orku- og loftslagsdagur á heimsýningunni í Sjanghæ
Þann 25. júní 2010 verður Norræn-kínverski orku- og loftslagsdagurinn haldinn á heimssýningunni í Sjanghæ. Meðal fyrirlesara og gesta verða ráðherrar auk framámanna í viðskiptalífinu og sérfræðinga frá Kína og Norðurlöndunum. Viðburðurinn mun beina kastljósinu að því hvernig aukið samstarf Kína og norrænu ríkjanna getur stuðlað að þróun og notkun hreinnar orku og nýrrar tækni á sviði loftslagsmála.
Viðburðirnir verða haldnir í norræna skálanum á sýningunni og verður þar boðið upp á fyrirlestra og umræður sérfræðinga og stjórnenda jafnt úr opinbera geiranum og viðskiptalífinu. Meðal fyrirlesara verða sérfræðingar eins og Bo Diczfalusy frá IEA og prófessor Jiang Kejun frá Orkurannsóknastofnun Kína. Norrænir ráðherrar taka einnig þátt í deginum, þar á meðal verða þau Karen Elleman frá Danmörku og Jan Vapaavuori frá Finnlandi.
"Kína er fyrir Norðurlöndum mikilvægur og vaxandi þátttakandi í þróun sjálfbærra orkukerfa og annarrar tækni. Tækniframfarir eru hraðar og þær eru teknar í notkun um leið og þær verða til. Með það fyrir augum að taka þátt í þessum vaxtarmöguleikum ættu Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð að sameinast um að nýta þau tækifæri sem skipulagt samstarf við Kína hefur upp á að bjóða. Þetta á bæði við um þekkingarmiðlun og samstarf við atvinnulífið", segir Anne Cathrine Gjærde, framkvæmdastjóri Norrænna orkurannsókna.
Allir aðilar myndu hafa hag af því að miðla þekkingu sín á milli og taka þátt í þróun og tengslaneti um sjálfbær orkukerfi og aðra tækni. Norræna ráðherranefndin vill með Norræna-kínverska orku- og loftslagsdeginum kynna þá færni og þá möguleika sem eru fyrir hendi á Norðurlöndum jafnframt því að stuðla að samstarfi við kínverska aðila.
Blaðamenn eru velkomnir fyrir hádegi milli kl. 09.00 og 11.30 í sýningarskála Finnlands, en þar verða kynnt erindi ráðherra og sérfræðinga.
Skráning, upplýsingar og nýjast útgáfa dagskrár er á www.nordicenergy.net/china
Norrænar orkurannsóknir, stofnun sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina, stendur fyrir viðburðinum. Nánari upplýsingar eru á www.nordicenergy.net/china
Hafið samband við
Heidi Hautajärvi, hh@nordicenergy.net +47 95 700 699
Benjamin Donald Smith, bs@nordicenergy.net +47 90 406 203
