Norræn-kínverskur orku- og loftslagsdagur haldinn í norrænu skálunum á EXPO 2010
Þann 25. júní 2010 verður Norræn-kínverski orku- og loftslagsdagurinn haldinn á heimssýningunni í Sjanghæ. Hagsmunaaðilar frá norrænum og kínverskum orkurannsóknum munu koma saman til þess að mynda tengsl og skiptast á hugmyndum. Meðal fyrirlesara og gesta verða ráðherrar og háttsettir embættismenn, auk framámanna í viðskiptalífinu og sérfræðinga.
Barbara Evaeus, samskiptastjóri loftslagsdeildar WWF í Svíþjóð
Viðburðurinn mun beina kastljósinu að því hvernig aukið samstarf Kína og norrænu ríkjanna getur stuðlað að þróun og notkun hreinnar orku og nýrrar tækni á sviði loftslagsmála. Til þess að sýna náið samstarf norrænu ríkjanna mun viðburðurinn færast á milli allra norrænu skálanna fimm eftir því sem dagurinn líður.
Norðurlönd og Kína eiga vel saman í samstarfi sem þessu.
- Norðurlönd hafa tekið virkan í aðgerðum til að sporna gegn loftslagsbreytingum um langa hríð og norrænir sérfræðingar hafa mikla reynslu af þróun og framkvæmd sjálfbærra orkulausna. Og vegna þess hversu hratt kínverskt efnahagslíf þróast, hafa Kínverjar mikla þörf fyrir orku, en einnig mikinn metnað til þess að uppfylla orkuþörfina með hreinni eða loftslagsvænni orku, segir Barbara Evaeus, samskiptastjóri loftslagsdeildar WWF í Svíþjóð.
- Viðburðir sem þessir eru stórkostleg tækifæri til þess að miðla reynslu og koma á verðmætum tengslum milli hagsmunaaðila í Kína og á Norðurlöndum.
Orku- og loftslagsstefna stjórnar oft hagsmunum þjóða rétt eins og verndarstefna í iðnaði og tækni. Barbara Evaeus ítrekar hins vegar að hlutdræg stefna sem slík sé úrelt og að ekki ætti að tala um tækniflutning heldur frekar viðskipti með tækni milli þjóða.
- Hlutir gerast svo hratt núna. Tækni sem hentar á einu svæði hentar mögulega ekki annars staðar. Vera má að Kínverjar séu langt á undan norrænu ríkjunum í þróun tækni sem byggir á þörfum þeirra sjálfra.
Barbara Evaeus mun stjórna norræna-kínverska orku- og loftslagsdeginum fyrir hádegi í finnska skálanum á EXPO. Sá hluti mun beina kastljósinu á þörfina á heildstæðum orkulausnum og möguleika á auknu samstarfi á sviði endurnýjanlegrar orku og loftslagstækni. Sem fulltrúi frjálsra félagssamtaka á alþjóðavettvangi eins og WWF sem stuðla að samstarfi á sviði orku- og umhverfismála óháð landamærum, er hún tilvalin til að stjórna viðburðinum.
Barbara mun kynna ráðherra og sérfræðinga, þeirra á meðal Karen Ellemann, umhverfis- og samstarfsráðherra Danmerkur; Jan Vapaavuori, húsnæðis- og samstarfsráðherra Finnlands; Jiang Kejun, framkvæmdastjóra stofnunar um orkurannsóknir hjá kínversku þróunar- og uppbyggingarnefndinni; Bo Diczfalusy, yfirmanns skrifstofu Alþjóðaorkumálastofnunarinnar um sjálfbæra orkustefnu og -tækni og Heidi Hiltunen, umhverfisráðgjafa hjá sendinefnd ESB í Kína.
Að loknum hádegisverði í skála Danmerkur, hefst síðdegisviðburðurinn í sænska skálanum þar sem sfallað verður um fjölmargar tilviksathuganir, og að auki verða umræður í pallborði með fremstu sérfræðingum á sviði orkutækni og nýsköpunar þar sem rætt verður um hvernig haga beri samstarfi Norðurlanda og Kína. Jørgen Delman, prófessor við Kaupmannahafnarháskóla, stjórnar þessum hluta viðburðarins.
Í lok dags verður þátttakendum boðið upp á mat, drykk og skemmtiatriði í skálum Noregs og Íslands þar senm þeir fá einnig tækifæri til þess að hittast á ræða saman óformlegum nótum. Viðburðurinn er hluti stærra verkefnis Norrænu ráðherranefndarinnar sem stefnir að því að efla samstarf Norðurlanda og Kína.
Tengiliðir
Hans Fridberg HF@norfa.no Farsími: +47 46 92 03 40
