Document Actions

Norræn leið í varnar- og öryggismálum

Utanríkis-, varnar- og öryggismál eru nú eitt öflugasta samstarf Norðurlandanna. En áhrif þinganna eru of lítil, að mati Norðurlandaráðs, og á þemaþinginu sem nú er haldið í Stokkhólmi eru lagðar fram tillögur til að tryggja öruggari Norðurlönd.

11/04 2013

Nordiska rådets temadebatt i Stockholm. Foto: Magnus Fröderberg/norden.org

Frá falli Berlínarmúrsins hefur norrænt utanríkis-, varnar- og öryggissamstarf aukist stöðugt. En þingsamstarfið hefur verið of lítið, að mati Norðurlandaráðs sem vinnur því að því að efla norræna samstarfið á þessu sviði. Um er að ræða utanríkis- og varnarmál og mál sem tengjast samfélagsöryggi og viðbragðsáætlunum.

Aðferðir norrænu ríkjanna í stefnumótun utanríkis- og varnarmála eru ólíkar. Sum Norðurlandanna eiga aðild að ESB en standa utan við NATO á meðan önnur eiga aðild að NATO en standa utan við ESB. Þetta á ekki að koma í veg fyrir að dýpka megi norrænt samstarf á þessu sviði.

„Málið snýst um pólitískan vilja. Hann sýnir hve langt við erum tilbúin til ganga", segir Marit Nybakk, sem einnig bendir á mikilvægi þess að löndin sýni hvert öðru virðingu og skilning á því hvernig þau vinna sína utanríkis- og varnarmálastefnu.

Hringborðsumræður

Ein af tillögum þemaþingsins til að efla þingsamstarf um varnarmál felur í sér að boða til hringborðsumræðna norrænu varnarmálaráðherranna, stjórnenda varnarmála og forsætisnefndar Norðurlandaráðs. Lagt er til að umræðan fari fram á hausti komanda í samstarfi við Finna en þeir gegna formennsku í NORDEFCO, norrænum samstarfsvettvangi um varnarmál.

„Umræðurnar gætu orðið áhrifavaldur um framtíðarlausnir í vörnum landanna. Stjórnmál Norðurlandanna og stefna þeirra í varnarmálum skipta miklu máli í Evrópu og víðar um heim", segir Marit Nybakk.

Landamæralausar hótanir

Forsætisnefnd Norðurlandaráðs var einnig sammála um að skrifa bréf til norrænu ráðherranna sem fara með þessi málefni og ráðherra Færeyja, Grænlands og Álandseyja með tillögum um að efla samfélagsöryggis- og viðbragðsaðgerðir. Ein tillagan felst í því að auka samstarfið innan NORDRED, þ.e. björgunarstarfi á Norðurlöndum. Önnur tillaga felst í því að auka miðlun á reynslu og rannsóknasamstarf.

„Margt sem gerist bæði á alþjóðavettvangi og á Norðurlöndum sýnir mikilvægi varnarmála fyrir öryggi í samfélaginu", segir Marit Nybakk forseti Norðurlandaráðs og hún nefnir sem dæmi stafrænar ógnanir eins rafrænar árásir og þær ógnanir sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér.

Þessar ógnanir virða engin landamæri og þess vegna leggur Norðurlandaráð nú áherslu á að að styrkja getu Norðurlandanna til að takast á við þessar ógnanir.

Fylgiskjal: Yfirlýsing um utanríkis- og varnarmálastefnu, og öryggi borgaranna, Skjal 3

Tengiliðir

Bodil Tingsby
Sími +45 33 96 03 57
Tölvupóstur bot@norden.org