Veitingastaðurinn Noma er tiltölulega nýr norrænn veitingastaður í Kaupmannahöfn. Enska Veitingahúsatímaritið valdi á dögunum staðinn sem einn af 50 bestu veitingastöðum í heimi.
Það eru Rene Redzepi og sjónvarpskokkurinn Claus Meyer sem eiga og reka veitingastaðinn Noma. Á matseðlinum er boðið upp á norrænan mat og matargerð. Þar má meðal annars finna sauðnaut, að sögn danska dagblaðsins Jylland—Posten.
Rene Redzepi vonast til að fleiri veitingastaðir með norrænan mat og matargerð verði opnaðir í Danmörku.
Norræna ráðherranefndin leggur áherslu á „nýja norræna matargerðarlist”. Auka á norræna vitund um norrænan mat og matargerð. Jafnframt geta Norðurlöndin vakið alþjóðlega athygli, eins og raunin er nú.