Norræn náttúra og ljóðalestur
Þann 17. nóvember verður ljósmyndasýningin Terra Borealis opnuð í einu af bókasöfnum Austur-Eistlands í Kohtla-Järve. Á sama stað og tíma verður haldið norrænt bókmenntakaffi. Umsjón hefur upplýsingaskrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Eistlandi.
Sýning Andy Horner, Terra Borealis (Norðurlönd), veitir gestum innsýn í stórbrotna fegurð norrænnar náttúru á meðan eistneski rithöfundurinn Raivo E. Tamm les ljóð eftir þekkt norræn ljóðskáld í bókmennakaffinu.
Ljósmyndarinn Horner sem fæddur er í Norður-Englandi, býr á Álandseyjum og landslagsmyndir hans frá þekktustu stöðum Norðurlanda eru árangur af sjö ára vinnu. Sjálfur segir Horner að myndirnar séu tilraun til að ljósmynda það sem landslagsmálarar mála.
Í bókmenntakaffinu er boðið upp á norrænar samtímabókmenntir og meðal annars verða lesin ljóð eftir tvo verðlaunahafa Norrænu bókmenntaverðlaunanna þau Piu Tafdrup og Lars Saabye Christensen.
Vefsíða Upplýsingaskrifstofunnar
Aita Männik, Kohtla-Järve Central Library, +372 33 73 953;
Eha Vain, Upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Eislandi, +372 50 57 243.
