Norræn orkusveitarfélög – keppnin er hafin
Norrænu orkumálaráðherrarnir hafa ýtt úr vör keppni sem öll sveitarfélög á Norðurlöndum geta tekið þátt í. Þau sveitarfélög sem hafa sett í gang brautryðjandi orkuverkefni sem stuðla að grænum hagvexti og vistvænni orkuþróun geta átt von á mikilli athygli vorið 2011.
Á fundi sínum í Kaupmannahöfn þann 25.október, ýttu orkumálaráðherrarnir úr vör samkeppninni Norræn orkusveitarfélög. Lykke Friis orkumálaráðherra Dana var gestgjafi fundarins.
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
Á fundi sínum í Kaupmannahöfn þann 25.október ýttu norrænu orkumálaráðherrarnir úr vör samkeppninni Norræn orkusveitarfélög. Þau sveitarfélög sem tilnefnd verða og sigurvegararnir verða kynnt um öll Norðurlöndum og á alþjóðavettvangi, Verkefnið varð til í samstarfi Dana sem fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni og Finna sem taka við árið 2011. Ráðherrarnir gera ráð fyrir mikilli þátttöku og miklu framboði sjálfbærra orkulausna sem þegar eru fyrir hendi í sveitarfélögunum.
Tengiliðir
Anne Sofie Bender
Sími
+45 3396 0274
Tölvupóstur
asb@norden.org
