Document Actions

Norræn símenntun

03/04 2005


Norðurlöndin standa frammi fyrir sameiginlegum áskorunum sem felast í því að styrkja þarf samkeppnishæfni landanna í alþjóðasamfélaginu, en jafnframt að viðhalda norræna velferðarkerfinu. Að efla mannauðinn er grundvallar atriði í því að styrkja þessa þróun. Mikil áhersla verður því að vera á símenntun fyrir alla. Norrænt netsamstarf um símenntun verður kynnt mánudaginn 4. apríl 2005 á LO-skólanum í Helsingør í Danmörku.

Danir, sem fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2005, benda sérstaklega á eftirfarandi aðferðir til að ná árangri með símenntun:
- Bættir möguleikar á því að meta raunhæfni í menntun
- Hæfnisuppbyggingu og þjálfun á vinnustöðum
- Sí- og endurmenntun fyrir þá sem litla menntun hafa fyrir
- Aukinn lestur

Á ráðstefnunni flytja fyrirlestra þeir Peter Höier skrifstofustjóri í menntamálaráðuneytinu í Danmörku, Villy Hovard Pedersen framkvæmdastjóri og formaður stjórnarnefndar um símenntun einnig frá Danmörku, Torild Nielsen Mohn, ráðgjafi VOX í Noregi, Eva Nordlund framkvæmdstjóri hjá Matsnefndinni, Svíþjóð, Hans-Inge Persson framkvæmdastjóri hjá Stofnun um sveigjanlega menntun í Svíþjóð, Antra Carlsen yfirverkefnisstjóri Norræna netsamstarfsins um símenntun og Margrete Hernes ráðgjafi hjá Norrænu ráðherranefndinni.