„Nordic Art Insight“, ný listasamkeppni norræna umhverfismerkisins var kynnt þann 18. apríl s.l. Fyrir fyrstu verðlaun í keppninni verða veittar 100.000 sænskar krónur og er markmið keppninnar að auka vitund um sjálfbæra neyslu.
Umhverfismerkingar snúast um að finna bestu vörurnar frá umhverfis sjónarmiði. En norræna umhverfismerkið gengur nú einu skrefi lengra til að vekja neytendur til vitundar um allar hliðar sjálfbærrar neyslu.
Ein aðferð til að auka vitund neytenda er að standa fyrir nýrri listasamkeppni, Nordic Art Insight, þar sem fyrstu verðlaun eru 100.000 sænskar krónur.
„Ein af aðaláskorunum okkar í dag er hvernig má ná sjálfbærni í neyslu sem tekur tillit til markmiða í loftslagsmálum og réttlátri dreifingu auðlinda heimsins. Þar sem við heyrum ekki rödd listamanna í umræðu um sjálfbærni í dag, hvetjum við þá til að taka þátt í samkeppninni.“ Listaverk segir oft meira en þúsund orð, segir Ragnar Unge, forstjóri umhverfismerkisins í Svíþjóð.
Til þess að taka þátt í keppninni verður listamaðurinn, auk þess að skapa listaverk, einnig að lýsa því hvernig listaverkið er unnið út frá sjónarhóli umhverfismála. Lýsa verður öllum framleiðsluferli listaverksins, þ.e. hvaða hráefni voru notuð, hvort þau eru endurunnin o.s.frv. á sama hátt og framleiðendur þurfa að gera við þær vörur sem bera norræna umhverfismerkið.
Listnemum eldri en 18 ára sem og listamönnum sem búa í einu af fimm norrænu ríkjanna er boðið að taka þátt í Nordic Art Insight samkeppninni.
Þátttökuverk á að senda inn á tímabilinu 15. mars til 31. maí næstkomandi. Tilkynnt verður um verðlaunahafann á sjálfbærniráðstefnu Norrænu ráðherranefndarinnar „Medskapandets konst“, í Umeå í september.
Nánar um samkeppnina á http://artnordic.org/info.
Nánar um sjálfbærniráðstefnuna Medskapandets Konst
Michael Funch
Tölvupóstur
mifu@norden.org
Anna Norberg, fjölmiðlatengill, umhverfismerkisins í Svíþjóð, sími: +46 (0)762 - 625 490 netfang: anna.norberg@svanen.se