Document Actions

Norræna nefndin um málefni fatlaðra 10 ára

Norræna nefndin um málefni fatlaðra er tíu ára um þessar mundir og heldur upp á afmælið með hátíðarráðstefnu í finnska sendiráðinu í Stokkhólmi. Hún hefst í dag föstudag og mun Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar setja hana.

19/10 2007

Nefndin gegnir mikilvægu hlutverki við stefnumótun og er einnig ráðgefandi fyrir Norrænu ráðherranefndina. Þannig leggur hún sitt af mörkum til að málefni fatlaðra séu sem mest á dagskrá í norrænu samstarfi.

Fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar, lýsi ég ánægju minni með stefnumarkandi og ráðgefandi þátt í starfsemi nefndarinnar ; 10 ára starf hefur beint sjónum manna að fötlun sem málefni samfélagsins, ekki vandamáli einstaklinga, segir Halldór Ásgrímsson.

Nefndin samþykkti fyrir tíu árum stefnuna "Hönnun fyrir alla" sem grundvöll fyrir starfsemi sína og er það enn jafn mikilvægt til að tryggja að allir þjóðfélagsþegnar geti verði virkir þjóðfélagsþegnar.

Hönnun fyrir alla er hluti af framtíðarsýn okkar í umhverfismálum, efnahagsmálum og félagsþjónustu. Þess vegna er hönnun fyrir alla er þáttur í endurskoðaðri áætlun ráðherranefndarinnar um sjálfbæra þróun, segir Halldór Ásgrímsson.

Á hátíðarráðstefnunni verður litið yfir farinn veg horft fram á við á þau verkefni sem við blasa. Meðal frummælenda eru Alec Aalto sendiherra Finnlands í Svíþjóð, Ivar Kristensen þingmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri nefndarinnar og Inge Ovesen núverandi framkvæmdastjóra nefndarinnar.