Document Actions

Norræna ráðherranefndin efnir til samkeppni um kennslutæki til að efla norrænan málskilning

Norræna ráðherranefndin efnir til samkeppni um þróun tækja sem nýta má til að efla norrænan málskilning barna og ungmenna á Norðurlöndum, í dönsku, norsku og sænsku.

Mar 01, 2011
Språk
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Ungum Norðurlandabúum reynist sífellt erfiðara að skilja þau tungumál sem töluð eru af frændþjóðunum,  þrátt fyrir aukin samskipti yfir landamæri. Norræna ráðherranefndin ýtti því á árinu 2010 úr vör tungumálaátaki, sem stendur til loka þessa árs.  Með átakinu er ætlunin að efla skilning barna og ungmenna á dönsku, norsku og sænsku. Þetta á að gera meðal annars með því að þróa tæki fyrir kennara og aðra sem vinna með börnum og ungmennum, tæki sem stuðla að því að bæta norrænan málskilning. Samkeppnin sem Norræna ráðherranefndin auglýsir nú, er eitt af átaksverkefnunum í tungumálaátakinu. Hvatt er til þess að tæki verði hönnuð  sem efli skilning barna og ungmenna á dönsku, norsku og sænsku. Með tæki er til að mynda átt við kennsluaðferðir, kennsluefni,  námskeið, kvikmyndir og leikhússýningar fyrir börn og ungmenni og fjölmiðlun og fjölmiðlaefni í víðu samhengi, þar sem tungumálið er í brennidepli.

Verðlaunafjárhæðin er 500 þúsund danskar krónur, eða jafnvirði um 10,5 milljónir íslenskra króna. Ráðherranefndin hvetur alla sem starfa á sviði menningar- og menntamála, og rannsókna- og nýsköpunar til að taka þátt í samkeppninni. Kennslutækin  skulu höfða til barna og ungmenna, vera af miklum gæðum og stuðla að því að uppfylla kröfur sem settar eru í tungumálaátakinu.

Tveir vinningshafar verða valdir, sem hvor um sig fær allt að 500 þúsund danskar krónur til að ljúka gerð tækisins.

Umsóknir skal senda rafrænt til  sprog@norden.org.

Nánari upplýsingar um samkeppnina, skilyrði sem uppfylla skal og markmið tungumálaátaksins eru á www.nordisksprakkampanj.org.

Umsóknarfrestur er til 15. júní 2011.

 

Tengiliðir

Kirsten Preisler
Sími +45 33960378
Tölvupóstur kp@norden.org

Tengt efni