Document Actions

Norræna ráðherranefndin harmar rússneska eftirlitsheimsókn

Rússnesk stjórnvöld fóru í eftirlitsheimsókn á upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kalíníngrad s.l. miðvikudag.

25/04 2013

Dagfinn Høybråten, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar harmar eftirlitsheimsókn rússneskra stjórnvalda á upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinarinnar í Kalílíngrad.

Viðbrögð framkvæmdstjóra Norrænu ráðherranefndarinnar við eftirlitsheimsókn rússneskra stjórnvalda voru eftirfarandi:

„Í lýðræðissamfélagi skiptir það sköpum að óháðar og óopinberar stofnanir fái tækifæri til að starfa frjálsar og óháðar og án þess að þurfa að óttast ótímabær inngrip og eftirlit Norræna ráðherranefndin harmar því eftirlitsheimsókn rússneskra stjórnvalda á upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kalíníngrad í gær", sagði Dagfinn Høybråten, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.

Upplýsingaskrifstofan í Kalíníngrad er hluti af skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar og starfar eftir samkomulagi við rússnesk stjórnvöld sem upplýsingaskrifstofa og tengiliður fyrir samstarf aðila frá Kalíníngrad-svæðinu og Norðurlöndum.

„Norræna ráðherranefndin harmar því mjög eftirlitsheimsókn gærdagsins, og telur hana hafa truflandi áhrif á annars gott samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar og Rússlands", segir Dagfinn Høybråten. Framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar mun í framhaldinu ræða málið við rússnesk stjórnvöld.

Nánari upplýsingar:

Kenneth Broman

Skrifstofustjóri

Skrifstofu framkvæmdastjóra

Sími: +45 24699403

Netfang: kbr@norden.org

-->-->-->